156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

[11:33]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Hér er auðvitað um nokkur tíðindi að ræða og rétt að fara yfir þennan mikla niðurskurð sem er hér í kortunum og hv. þingmenn hafa rætt. En ég tel rétt að fá einnig annað álit á þessa ráðgjöf því að það er ekki hægt að horfa fram hjá því að ráðgjöfin hefur minnkað um hátt í 70.000 tonn á fimm árum. Þá er rétt að spyrja sig, og þá var höfuðstóllinn — menn tala hér um vexti eins og þetta séu vextir á bankabók — með hæsta móti: Hvers vegna erum við að fara niður á við? Þetta er spurning sem við þurfum að fara yfir og fá annað álit á. Sama á við um ufsann, hann fer talsvert niður á við þrátt fyrir að menn hafi ekki náð að veiða samkvæmt ráðgjöfinni. Þannig að ég bara tek það fram að hérna er vissulega um tíðindi að ræða sem við eigum að fara yfir. Hér hafa þingmenn kallað um mismunandi greiningar, jafnvel frá Noregi og út af allt öðru máli. Ég tel rétt að við förum yfir þetta mál. Þetta er stórt mál og við eigum að (Forseti hringir.) skoða það af alvöru hvort það sé ekki hægt að ná til botns í því (Forseti hringir.) hvers vegna menn eru hér að fara niður verulega í ráðgjöfinni þó að henni hafi verið fylgt út í ystu æsar (Forseti hringir.) síðastliðin ár.

(Forseti (BHar): Forseti minnir aftur hv. þingmenn á að virða tímamörkin.)