ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar .
Virðulegi forseti. Það var áhugavert að hlusta á yfirsjávarútvegsráðherrann, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, tala hér áðan. Hv. þingmaður nefndi að það ætti kannski aðeins að hlusta á ráðgjöf, talaði um vísindamennina. Það er gott vegna þess að við erum með frumvarp sem í fyrsta skipti í manna minnum kemur fram án þess að menn hafi við undirbúninginn talað við vísindamennina, talað við Hafrannsóknastofnun. Það er bara þannig að náttúran er ekkert í spotta hjá hæstv. ríkisstjórn, hún fer bara sínu fram, og nú reynir á hversu langt hæstv. ríkisstjórn ætlar að ganga í að fara gegn þeirri þverpólitísku samstöðu sem hefur verið í áratugi um að fylgja eftir ráðleggingum hæfustu vísindamanna. En eins og staðan er núna þá liggur hér fyrir frumvarp á Alþingi Íslendinga þar sem er hreint og klárt skrifað út að það á ekki (Forseti hringir.) að fara eftir ráðleggingum vísindamanna, færustu vísindamanna. Og þeir (Forseti hringir.) voru ekki hafðir í samráði þegar frumvarpið var samið.