156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar .

[11:37]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég hef um nokkurn tíma haft áhyggjur af því fyrir hönd meiri hlutans hvernig þau ætli að ljúka þessu þingi og varðar það þá einmitt fundarstjórn forseta, hvaða mál eru sett á dagskrá. Í dag er mál komið sem var fyrsta mál ríkisstjórnarinnar í upphafi þessa þings, bókun 35. Það eru tveir mánuðir síðan það var tekið út úr nefnd en er komið hér á dagskrá í dag þegar það eru, held ég, þrír þingfundadagar eftir af starfsáætlun þingsins. Síðan birtast fréttir sem eru auðvitað grafalvarlegar og ættu að verða til þess að ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir endurskoðuðu hugmyndir sínar um verulega skattlagningu á sjávarútveginn. Strandveiðifrumvarpið er náttúrlega jafn galið og alvitlaust og það er og skánar ekki við þá staðreynd að hér er minnkandi þorskveiði fram undan. En þetta hefur líka efnahagsleg áhrif, (Forseti hringir.) frú forseti, og ég held að ríkisstjórnin þurfi hreinlega að endurskoða hvaða stefnu þau eru að taka hér (Forseti hringir.) í skattlagningu á grundvallaratvinnugreinar landsins.