Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. framsögumanni fyrir framsögu um þetta mikla mál. Mig langar að spyrja hann út í nokkur atriði hér, a.m.k. eitt sem ég hnaut um. Hann vísar til gildandi forgangsreglna, sem eru á víð og dreif eða dæmi um það í nokkrum lagaákvæðum, lagabálkum, um forgangsáhrif erlendra reglna. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður telji að þær forgangsreglur hafi sömu lagalegu stöðu og sú forgangsregla sem hér er verið að mæla fyrir um, einkum og sér í lagi í því ljósi að þær forgangsreglur sem eru í löggjöf nú þegar eru reglur sem vísa í tilteknar reglur, alþjóðlega samninga eða þess háttar, sem hafi forgang yfir tiltekin lagaákvæði einmitt í þessum lagabálkum. Það er nú reifað í frumvarpinu hvaða reglur það eru, sem dæmi 18. gr. laga um lagaskil á sviði samningaréttar sem vísar í ákveðnar alþjóðlegar reglur sem víkja þá til hliðar tilteknum ákvæðum í lögum um lagaskil á sviði samningaréttar.
Mér finnst mikilvægt að menn festist ekki í upphafi þessarar umræðu í einhverjum misskilningi um eðli forgangsreglna almennt, hvers eðlis þær eru. Þær geta verið mismunandi eins og ég nefni hér, tilteknar reglur sem vísa þá öðrum til hliðar. Hér er um að ræða frumvarp sem kveður á um almennan forgang á allri almennri löggjöf. (Forseti hringir.) Það væri ágætt að fá vangaveltur hv. þingmanns um þetta atriði sérstaklega.