156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:12]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Ásthildi Andersen kærlega fyrir hennar andsvar. Eins og hún nefnir er forgangsreglur að finna víða í íslenskum lögum til viðbótar við venjuhelgaðar lögskýringarreglur sem beitt er við forgang lagaákvæða ef þau rekast á og það eru nokkur dæmi um slíkar reglur nefnd í greinargerð með frumvarpinu. Það sem kannski skiptir meira máli, af því að hér var spurt hvort þessi regla væri sambærileg þeim reglum sem hafa verið settar — og það er erfitt að segja til um hvað sé sambærilegt, það eru auðvitað engar tvær lagareglur eins — en þær eru sambærilegar alla vega að því leyti að þær eru forgangsreglur, þ.e. þær hjálpa dómstólum að túlka hvaða regla hefur forgang ef tvö lagaákvæði rekast á. Það er ekki bara mín skoðun heldur niðurstaða Hæstaréttar sjálfs að slíkar reglur sé að finna í íslenskum lögum og Hæstiréttur sjálfur tiltekur dæmi um slíkar reglur. Óháð því hvort ég telji þessa reglu vera sambærilega eða ósambærilega öðrum reglum sem hafa verið settar er alla vega óumdeilt að mínu mati að löggjafinn getur sett slíka forgangsreglu.