Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að löggjafinn getur sett lög sem kveða á um forgang tiltekinna laga yfir önnur lög. Það er alvanalegt og sem dæmi má nefna þessi lög sem ég nefndi hér, lög um lagaskil á sviði samningaréttar þar sem grein kveður á um að aðrar sérreglur víki þeim til hliðar. Það er í fullu samræmi við íslenskt réttarfar og regluna lex specialis sem kveður á um að sérreglur víki til hliðar almennum reglum. Þetta er alvanalegt en það er líka sérstaklega tekið fram í öllum þessum reglum sem frumvarpið vísar til sem dæmi um lög sem kveða á um forgang annarra reglna að þar er vísað til sérstakra sérreglna. Það er því ekkert nýtt þar á ferð eða óvenjulegt. Hins vegar er í þessu frumvarpi verið að leggja til að ósett löggjöf muni hafa forgang yfir jafnvel sérreglur hér á landi, þannig að mig langar að spyrja (Forseti hringir.) hv. þingmann: Fjallaði nefndin sérstaklega um þessa meginreglu í íslensku réttarfari um að sérreglur gangi framar almennum reglum í þessu sambandi?