Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Ásthildi Andersen kærlega fyrir hennar síðara andsvar. Nefndin fjallaði nokkuð ítarlega um málið yfir tveggja mánaða tímabil, á nánast öllum þeim fundum sem haldnir voru frá því að þing var sett og þangað til nefndin tók málið út í byrjun apríl, og það var töluverð umræða um forgangsreglur þar. En eins og ég sagði áður þá kemur auðvitað fram í nýlegum dómi Hæstaréttar að löggjafinn geti sett slíkar reglur og er þessari spurningu jafnframt svarað í áliti Þorgeirs Örlygssonar, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, sem við fengum á síðasta kjörtímabili. Nefndin telur sig hafa rætt þetta nokkuð ítarlega og komist að þeirri niðurstöðu að löggjafanum sé vel fært að setja slíka forgangsreglu, enda mælir Hæstiréttur Íslands með að svo verði gert.