156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:16]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir framsöguna. Ég geri ráð fyrir því að hv. þingmanni sé kunnugt um hvaða ráðstafanir bjuggu að baki fyrir 32 árum þegar þessi bókun var innleidd. Ég tók sérstaklega eftir því að hv. þingmaður hélt því fram í ræðu sinni að hún hefði verið rangt innleidd hér í 32 ár og vil biðja hann um að rökstyðja betur fyrir okkur, fyrir þingheimi, hvers vegna hann heldur þessu fram. Ég sé ekki betur en að framkvæmdir hafi gengið alveg ágætlega. Ráðstöfunin við frágang bókunar 35 var ekki til bráðabirgða og þetta voru ekki mistök. Ég stórlega efast um að hún hefði verið innleidd hér með þeim hætti sem meiri hluti hv. utanríkismálanefndar er að leggja til. Ég stórlega efast um að þetta hefði verið innleitt með þessum hætti fyrir 32 árum. Sennilega hefðum við ekki gerst aðilar að EES-samningnum hefði þetta verið reyndin þá. En mig langar að biðja hv. þingmann að rökstyðja betur hvers vegna hann heldur því fram að þessi bókun hafi verið innleidd hér rangt síðastliðin 32 ár. Ég finn hvergi þau rök.