156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:21]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Bara varðandi form málsins og hvort það hafi verið rifið út í miklum asa þá var málið tekið fyrir á átta fundum nefndarinnar yfir tveggja mánaða tímabil. Það var gefinn eðlilegur umsagnarfrestur og það voru sendar umsagnarbeiðnir á fjölmarga aðila, m.a. þann sem hv. þingmaður nefnir hér en sá aðili skilaði ekki umsögn til nefndarinnar. 10. mars var gefinn frestur til að kalla eftir frekari gestakomum og það bárust engar frekari óskir um gestakomur af hálfu nefndarmanna þannig að nefndin gaf sér ágætistíma með gestum, fékk ráðuneytið í lokin og afgreiddi málið 4. apríl. Það var ekkert aðfinnsluvert við það hvernig nefndin hagaði sinni vinnu.

Varðandi það hvernig ég telji að málið standist stjórnarskrá þá held ég að greinargerðin með frumvarpinu, nefndarálit og það álit sem Þorgeir Örlygsson skilaði svari því bara ágætlega. Það er of stutt eftir til að reifa það hér, á þeim átta sekúndum sem eftir eru, en um er að ræða eins og áður almennt lagaákvæði sem er forgangsregla sem skýrir hvað eigi að gera þegar tvö íslensk lagaákvæði rekast á.