Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Við ræðum hér breytingu á einu af grundvallarákvæðum EES-samningsins sem samþykktur var á Alþingi árið 1993, þ.e. að svokallaðri bókun 35 við samninginn verði breytt frá því sem þá var samþykkt. En þá er rétt að hafa í huga og byrja á því að sú afgreiðsla sem fór fram hér fyrir 32 árum var ekki tilviljanakennd. Menn gerðu ekki bara óvart mistök með því hvernig gengið var frá sérstaklega þessari tilteknu bókun. Sú leið sem var farin með bókun 35 var forsenda þess að það næðist meiri hluti fyrir stuðningi við EES-samninginn. Þetta var ekki óvart. Þetta var ekki tilviljun. Þetta var ekki villa sem ástæða er til að leiðrétta. Þetta var ein af forsendum þess að Alþingi Íslendinga, og íslenskur almenningur raunar líka, sæi sér fært að styðja þennan samning að því marki sem varð og leiddi til innleiðingar hans eða samþykkis hans. Vegna þess að það að koma hér 32 árum seinna, eftir að Ísland hefur unnið eftir þessum samningi með þessa tilteknu bókun eins og hún hefur verið frá upphafi og segja að það sé bara allt í einu algerlega nauðsynlegt að breyta þessu, það heldur ekki vatni.
Auðvitað heyrir maður oft talað um, sérstaklega í seinni tíð, að EES-samningurinn sé lifandi samningur. Þá eiga menn við það að hann breytist með nýjum ákvörðunum sem oft þarf samþykki Alþingis til að innleiða en það er ekki þar með sagt að menn geti breytt grunnforsendum samningsins, grundvallaratriðinu í því hvernig til hans var stofnað. Þetta var mjög umdeilt mál á sínum tíma og reyndar það mál sem taldist nú líklegast til að valda því að forseti Íslands neitaði að fallast á lagasetningu í fyrsta skipti. Það fór ekki svo. Eftir nokkra umhugsun, þá með hliðsjón af skýrum meirihlutavilja Alþingis og þeim loforðum sem höfðu verið gefin samhliða samþykkt samningsins varðandi fullveldi landsins og stjórnarskrá, og þar er bókun 35 og útfærsla hennar lykilatriði, þá féllst þáverandi forseti, Vigdís Finnbogadóttir, á að undirrita lögin.
Þessi samningur hefur vissulega tekið ýmsum breytingum og vaxið og það er kannski eitthvað sem við ættum að velta meira fyrir okkur, hvort sá vöxtur sé orðinn á köflum stjórnlaus. Ég minnist þess að hafa fjallað um EES-samninginn í frétt þegar ég starfaði á Ríkisútvarpinu sem fréttamaður. Ríkisútvarpið átti eintak af EES-samningnum frá 1994, hafði verið gefinn út í fjórum heftum, þunnum heftum. Þrjú hefti voru samningurinn sjálfur, eitt hefti með skýringargögnum. Á heildina var þetta bara eins og sæmilega þykk bók. Nú þyrfti líklega þessi samningur fleiri hillumetra af möppum vegna þess hversu mikið hann hefur vaxið en þeim mun mikilvægara er að huga að grunninum, að þeim varnöglum sem voru settir inn í samninginn strax í upphafi og veita okkur Íslendingum rétt og vernd gagnvart því að hér verði innleitt regluverk sem fellur ekki að okkar aðstæðum eða hentar okkur ekki hér.
Nefnt hefur verið í þessari umræðu nú þegar og í fyrri umræðu um þetta mál að Hæstiréttur hafi í raun breytt stöðunni með því að kalla eftir þessari löggjöf sem hér er lögð fram í þessu frumvarpi. Þetta er fásinna, frú forseti. Hæstiréttur hefur jú gert athugasemdir við að það hafi verið skörun milli Evrópureglna og íslenskra laga. Áður en lengra er haldið tel ég rétt að útskýra hvað ég á við með íslenskum lögum annars vegar og Evrópureglunum hins vegar. Þegar ég tala um íslensk lög þá er ég að tala um lög sem verða til hér á Íslandi, hér á Alþingi, eða eftir atvikum í ráðuneytum en eru afgreidd hér á Alþingi, lög sem verða til í krafti þess valds sem íslenskir kjósendur veita okkur og eiga að taka mið af okkar aðstæðum og þörfum. Það eru íslensk lög. Evrópulöggjöfin er það sem við fáum sent, pinklarnir og umslögin á færibandinu, og ætlast er til að við innleiðum hér. Sumir vilja meina að þessi evrópsku lög séu ekkert síður íslensk lög en þau íslensku af því að Alþingi þurfi hvort eð er að samþykkja þau. Þetta er líka rökleysa, frú forseti, því með sama hætti gætu menn reynt að halda því fram að Ísland gæti verið sjálfstætt fullvalda ríki með rétt á að taka eigin ákvarðanir þrátt fyrir að erlent vald sendi hingað stöðugt löggjöf með kröfunni um að Alþingi stimplaði löggjöfina og samþykkti. Það væri í raun bara sýndarsjálfstæði. Það sama er verið að leggja hér til með því að ætla evrópsku lögunum og evrópsku reglunum æðra hlutverk, æðri stöðu en hinum íslensku. Þetta myndi hafa í för með sér verulega veikingu á fullveldi landsins og gengur líklega í berhögg við stjórnarskrá eins og ég mun ræða síðar.
En aftur að Hæstarétti. Hæstiréttur bendir á það að lög stangist á í sumum tilvikum en Hæstiréttur hefur ekki mælt fyrir um það að Alþingi skuli bregðast við því með tilteknum hætti, enda tel ég að Hæstarétti dytti það ekki í hug. Hæstiréttur, dómsvaldið hefur ekki boðvald yfir löggjafarvaldinu. Hér er þrátt fyrir allt í gildi þrískipting ríkisvalds og stjórnarskrá. Það að gefa til kynna að Hæstiréttur sé núna að segja Alþingi Íslendinga hvers konar lög það eigi að setja er rangt og til þess fallið að rugla samskipti löggjafarvalds og dómsvalds.
Þá er stundum nefnt að það sé mikilvægt, ég sé að það er eitt af meginatriðunum í nefndaráliti meiri hlutans eins og svo oft áður í umræðu um þetta mál, að það sé rétt að fallast á þessa breytingu til að tryggja þá vernd sem felist í evrópska regluverkinu, í erlendu eða aðsendu reglunum. Þetta er afskaplega undarleg afstaða, frú forseti, og bendir til þess að þeir sem reyna að beita slíkum rökum hafi í rauninni ekki fulla trú á sjálfstæði landsins og lýðræðinu því ef hugmyndin er sú að einhverjir okkur vitrari embættismenn í útlöndum, í kansellíinu í Brussel, séu betur til þess fallnir að gefa íslenskum almenningi einhverja vernd heldur en íslenskur almenningur sjálfur og fulltrúar hans á Alþingi þá hafa menn einfaldlega misst trú á því lýðræðisfyrirkomulagi sem við búum við á Íslandi. Það ætti frekar að hafa áhyggjur af því að vernd sem íslenskir alþingismenn, Alþingi sjálft veitir Íslendingum lúti í lægra haldi ef hún stangast á við aðsendu reglurnar. Ef við raunverulega trúum á þetta verkefni hér í þingsal þá hljótum við að líta svo á að við séum fullfær um að meta hvaða vernd og hvaða þjónustu við viljum veita og gera það betur en þeir í kansellíinu í Brussel sem taka ekkert sérstakt tillit til íslenskra aðstæðna heldur þurfa að laga sínar reglur að Evrópu allri.
Nú hef ég nefnt tvær meginástæðurnar sem títt eru nefndar fyrir því hvers vegna það þurfi allt í einu að samþykkja þessa breytingu þrátt fyrir að þetta hafi ekki valdið neinum vandræðum í 32 ár og hvorug skýringin stenst þegar að er gáð. Hæstiréttur er ekki að segja Alþingi að það eigi að leggja fram nákvæmlega svona frumvarp og Hæstiréttur hefur reyndar lengst af dæmt þannig, eðli máls samkvæmt, að íslenska löggjöfin, auðvitað sérstaklega þegar um nýrri löggjöf er að ræða, væri æðri hinni erlendu. Þannig að þessar áhyggjur eru tiltölulega nýtilkomnar og má í því samhengi nefna það sem ég kem nánar inn á síðar, að fyrrverandi forseti Hæstaréttar, Markús Sigurbjörnsson, hefur bent á það í lærðri ritgerð að breyting eins og sú sem hér er lögð til á bókun 35 geti að öllum líkindum verið brot á stjórnarskrá, og þá ættu nú alþingismenn að hafa það hugfast að þeir hafa svarið eið að stjórnarskrá Íslands og mega ekki samþykkja lög sem ganga þvert á hana.
Þriðja atriðið sem tínt er til, einu sinni sem oftar, er í rauninni ekkert annað en brella. Það er sú fullyrðing að hægt verði að setja lög sem heyra ekki undir hið nýja ákvæði eða hina nýju bókun 35 þannig að lögin verði áfram æðri þeim aðsendu ef það er tekið sérstaklega fram við lagasetninguna, þá sé hægt að komast fram hjá þessu.
Ég ætla að grípa aðeins niður í nefndarálit meiri hlutans hvað þetta mál varðar og lesa beint upp úr því, með leyfi hæstv. forseta:
„Frumvarpið gerir þó ráð fyrir að standi vilji löggjafans til að setja slíkt ákvæði, sem gengur í berhögg við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands, skuli það liggja skýrt fyrir …“
Sjáðu, frú forseti, sjáðu hvernig þetta er orðað. Það er búið að kynna þetta svona sem brelluna að Alþingi geti ákveðið það samhliða því að setja lögin að um þau gildi ekki hin nýja bókun 35, en samt eru þeir hinir sömu að orða slíka framkvæmd sem svo að hún gangi í berhögg við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands. Það er nú ekki meiri trú á þessu ákvæði en svo, en jæja, höldum áfram:
„… sem gengur í berhögg við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands, skuli það liggja skýrt fyrir enda má ganga út frá því að almennt sé reglum landsréttar ætlað að vera í samræmi við þær skuldbindingar.“
Hér er verið að árétta að brellan sú að Íslendingar í rauninni ráði sér enn þá sjálfir af því að þeir geti sett alveg sérstaka reglu við lagasetningu um að hin nýja bókun 35 gildi ekki — verið að árétta það að almennt eigi ekki að gera þetta enda eigi menn að setja lög í samræmi við skuldbindingar. Hvaða skuldbindingar? Jú, skuldbindingarnar sem með þessu frumvarpi er verið að reyna að leggja á Íslendinga og Alþingi. Hér hefur meiri hluti nefndarinnar sérstaklega fyrir því að verja þær skuldbindingar, verja þær fyrir því ákvæði sem átti að vera einhvers konar brella til að útskýra fyrir okkur að þetta sé allt í lagi. Áfram heldur þessi málsgrein:
„Þá mun ákvæði 1. gr. frumvarpsins hafa stöðu almennra laga og getur Alþingi ákveðið á síðari stigum að breyta eða afnema það.“
Einmitt. Það er ekki mikil trú á brellunni sem átti að draga úr áhyggjum okkar og raunar má segja að það sé beinlínis sett út á hana, enda ef menn tryðu því raunverulega að þetta væri einhver lausn að samhliða lagasetningu geti Alþingi tekið sérstaklega fram að það sem búið er að samþykkja, hin nýja bókun 35, eigi ekki við þá held ég að menn annaðhvort skilji ekki alveg hvernig lagasetning gengur almennt fyrir sig hérna á Alþingi eða kjósi a.m.k. að líta fram hjá því, því að hvenær myndi ríkisstjórn sem treystir sér ekki einu sinni — og hefur reyndar aldrei gerst — til að nýta það ákvæði sem skrifað er inn í EES-samninginn til að tryggja rétt okkar til að hafna því sem fellur ekki að okkar aðstæðum — menn hafa ekki treyst sér til að nýta það og virðast lifa í stöðugum ótta við EES-samninginn í stað þess að líta á hann sem gagnkvæmt tæki sem eigi að þjóna öllum aðilum samningsins — hvenær myndi slíkt stjórnvald taka það sérstaklega fram við lagasetningu að nú myndi sko ekki nýja bókunin gilda? Það myndi ekki gerast, alla vega ekki hjá þessari ríkisstjórn. En það sem meira er er að í mörgum tilvikum þyrfti alveg sérstaka forsjálni, menn þyrftu að geta séð fram í tímann til að vita nákvæmlega hvenær ætti að beita þessu úrræði, því úrræði sem er talað niður hér þegar í áliti meiri hlutans. Þetta er bara brella. Ég held að við getum gengið út frá því sem vísu.
Ég mun í seinni ræðum hér ræða fyrri afstöðu íslenskra stjórnvalda til þessa máls því að fyrri stjórnvöld höfðu allt aðra nálgun á þetta mál heldur en núverandi ríkisstjórn og reyndar kannski sú síðasta líka. Það kom fram í 1. umræðu um þetta mál að utanríkisráðuneytið hefði ítrekað sent bréf á Eftirlitsstofnun EFTA og eftir atvikum Evrópusambandið til að árétta að það væri ekkert víst að Ísland ætti að ráðast í þessa breytingu á bókun 35. Raunar væru ýmis rök sem hnigju að því að Ísland gæti ekki gert þessa breytingu sem nú er verið að leggja til að verði leidd í lög. Það var dregið fram að þetta kynni að vera stjórnarskrármál og í andstöðu við stjórnarskrána. Það var minnt á að þetta hafi ekki verið til vandræða í 30 ár og þar fram eftir götunum. En þetta mun ég rekja nánar ásamt því að fjalla um minnisblað til utanríkismálanefndar frá árinu 2020 þar sem nefndin var í raun vöruð við því að leggja fram frumvarp eins og það sem hér er eina ferðina enn komið á dagskrá út af einhverri undarlegri þrákelkni, ég myndi segja ákveðinni þrælslund. Mér finnst birtast í þessu máli ákveðin þrælslund og uppgjöf, eins og lesa má úr nefndaráliti meiri hlutans og greinargerð með frumvarpinu. Þar er beinlínis verið að taka upp, ólíkt því sem áður var, málstað Evrópusambandsins eða ESA gagnvart Íslandi. Áður, fyrir fáeinum árum, reyndu íslensk stjórnvöld að verja málstað Íslands. Nú er hér í frumvarpi og í nefndaráliti verið að tala máli gagnaðilans eins og til að mynda með þessari setningu, frú forseti:
„Að mati meiri hlutans er ljóst að bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið hefur ekki verið réttilega innleidd í íslenskan rétt.“
Það er af sem áður var greinilega. En hvers vegna þess uppgjöf? Hvers vegna þessi þrælslund? Hvers vegna þessi hræðsla við Evrópusamstarfið og EES-samninginn? Ég veit það ekki en þetta er alla vega ekki til þess fallið að styrkja samninginn ef menn ætla að nálgast hann með því að lifa í stöðugum ótta við hann. Þetta minnir mig á tillögu danska stjórnmálamannsins Mogens Glistrup sem á tímum kalda stríðsins lagði til að danski herinn yrði lagður af og í staðinn yrði settur upp símsvari við landamærin sem segði á rússnesku: Við gefumst upp. Þessi tillaga var lögð fram í ljósi reynslunnar og í sparnaðarskyni en auðvitað alla vega að miklu leyti í gríni. En þessi ríkisstjórn og þeir sem tala fyrir þessu máli eru ekkert að grínast. Kannski kemur einhvern tímann að það verði hægt að spara í utanríkisþjónustunni gagnvart Brussel með því að hafa þar símsvara eða sjálfvirkan tölvupóst sem svarar erindum með því að segja: Við munum fylgja leiðsögn ykkar, við munum gera þetta, við munum gefast upp.
Þetta finnst mér mikið áhyggjuefni og sérstaklega finnst mér undarlegt að farið sé fram með þessum hætti núna bara nokkrum misserum eftir að það kom nú aldeilis í ljós hversu mikilvægur fullveldisrétturinn væri okkur Íslendingum þegar við lentum í verulegum átökum við erlend stjórnvöld og Evrópusambandið eða fulltrúa þess, átökum sem vörðuðu gríðarlega hagsmuni í slagnum um Icesave, í stríðinu um uppgjör slitabúanna þar sem var einmitt, eins og ég sagði frá hérna í 1. umræðu, oft reynt að flagga einhverjum Evrópureglum sem túlkaðar voru þannig að Íslendingar þyrftu bara að sætta sig við það sem ætlast var til af þeim, þeir væru þátttakendur í þessu samstarfi og hefðu ekki rétt á að malda í móinn með það. En þá var hægt að útskýra fyrir mönnum að Ísland væri enn þá fullvalda ríki og gæti sett lög sem gengju framar hinum evrópsku reglum. Það var hægt að segja þetta án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að almennt eigi aðsendu Evrópureglurnar að hafa meira vægi en þær íslensku. Þetta var grundvallaratriði í því að Ísland skyldi ná sér aftur á strik eftir bankahrunið og í raun bara undarlegt að sjá hversu fljótir menn eru að gleyma, menn eru í raun og veru búnir að gleyma, eins og ég kom inn á í upphafi, hvernig til þessa samnings var stofnað og hverjar forsendurnar voru fyrir því að hann yrði samþykktur. Þó hafa þeir sem helst börðust fyrir samningnum á sínum tíma, þar með talið utanríkisráðherra á þeim tíma sem þessi samningur var innleiddur, Jón Baldvin Hannibalsson, reynt að minna á hvað þurfti til að ná meiri hluta fyrir samningnum og að það hefðu verið skýrar línur dregnar í sandinn við frágang samningsins á sínum tíma til að tryggja að samningurinn félli að stjórnarskránni og fullveldi landsins héldist.
Frú forseti. Ég veit ekki hvort ég hef tíma til að fara mikið í það í þessari fyrstu ræðu en ég óttast að þetta skýrist að miklu leyti af Evrópusambandsþráhyggjunni sem hrjáir suma flokka hérna á Alþingi. Það er búið að vera sannast sagna undarlegt að fylgjast með framgöngu kannski sérstaklega hv. þingmanna og hæstv. ráðherra Viðreisnar sem hafa sinnt fáu öðru frá því að þessi ríkisstjórn tók til starfa en að reyna að þóknast Evrópusambandinu. Hæstv. utanríkisráðherra var nú ekki búinn að vera marga daga, kannski ekki einu sinni marga klukkutíma í ráðherrastól þegar hæstv. ráðherra hóf ferðalög sín um Evrópu til að hitta þar einhverja evrópska pótintáta, eða í sumum tilvikum og mörgum talsmenn þeirra, til að útskýra áhuga íslensku ríkisstjórnarinnar á að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Þetta hefur litað samskipti Íslands við önnur lönd og að mínu mati m.a. við Bandaríkin, samskipti við Bandaríkin verið vanrækt á meðan og ekki hvað síst vegna þess að allt gengur út á að þóknast Evrópusambandinu þessa dagana og inn í þær aðstæður dettur þetta frumvarp hér. Aðra skýringu finn ég ekki í fljótu bragði á því hvers vegna þetta mál er allt í einu orðið algjört forgangsatriði þessarar ríkisstjórnar og lyft hér í dagskrá þingsins á meðan ríkisstjórnin á mörg önnur mál ókláruð.
Við höfum meira að segja heyrt af algerum sinnaskiptum hæstv. ráðherra og hv. þingmanna Flokks fólksins. Það er bara mjög undarleg saga að segja, því að sumir núverandi hv. þingmenn Flokks fólksins höfðu nú reynt að gera sig gildandi í umræðunni um bókun 35 á fyrri stigum og jafnvel þóst vera allra manna traustastir í því að verja Ísland og fullveldið gagnvart þeim tilburðum sem birtust í fyrri frumvörpum um bókun 35. En svo gerðist það nú bara um leið og menn voru komnir í ráðherrastólana — ég held reyndar, frú forseti, að það hafi verið fyrsta viðtalinu sem ráðherra nýrrar ríkisstjórnar fór í og hafi verið tekið eftir ríkisráðsfund á tröppunum fyrir utan Bessastaði við hæstv. innviðaráðherra Eyjólf Ármannsson sem sagði þar frá því í óspurðum fréttum að hann hefði jú alltaf verið mjög á móti bókun 35 og teldi hana brot á stjórnarskrá en af því að hann væri orðinn ráðherra hefði hann skipt um skoðun. Það virðist nú nokkuð gegnumgangandi hjá ráðherrum þessarar ríkisstjórnar að fyrri afstaða heldur ekkert endilega ef hún veldur einhverjum vandræðum með það að halda í ráðherrastólana. Límið í þeim er sterkt.
Ég mun í þessari umræðu þurfa að fara ítarlega yfir mjög marga þætti þessa máls. Ég held að það veiti ekkert af því, miðað við hvernig talsmenn þessa máls tala hér á Alþingi, að rifja upp atburðarásina sem leiddi til þess að Alþingi samþykkti samninginn um Evrópska efnahagssvæðið á sínum tíma, rifja upp þær ræður sem þá voru haldnar og þau viðtöl sem veitt voru og umræðuna sem átti sér stað í samfélaginu. Við munum augljóslega þurfa að ræða lagalegan grundvöll, stjórnarskrána. Sem betur fer hefur eitt og annað verið ritað um það af lærðum mönnum og ekki getum við klárað þetta mál öðruvísi en að fara í gegnum þá umfjöllun alla.
Við þurfum líka að velta fyrir okkur samhliða þessu eðli EES-samningsins og hvernig við viljum nálgast hann því það eru ákveðin vatnaskil í þeim málum með því frumvarpi sem lagt er fram hér og má kannski segja að sé löngu tímabært að við gerum það. Viðbrögðin við því þegar imprað er á slíku hafa reyndar iðulega verið þau af hálfu sérstaklega Evrópusambandsflokkanna að saka þá sem spyrja spurninga um að vera að grafa undan EES-samningnum eða vera á móti honum. Það er nú öðru nær því að það eflir samninginn ef við upplifum hann þannig að í honum felist gagnkvæm hagkvæmni og gagnkvæm virðing milli þeirra aðila sem undirrituðu hann.
Ég held að við munum líka þurfa að ræða aðeins um grundvöll fullveldis Íslands og aðdraganda þess að það náðist, þær hugmyndir sem lágu þar að baki, þær vangaveltur og þau álitamál sem upp komu í sjálfstæðisbaráttu Íslands og þær niðurstöður sem betur fer náðust að lokum, hvernig þær voru til komnar, hver hugmyndin var með fullveldinu, sjálfstæðinu og lýðræðinu. Þetta þurfum við að rifja upp. Það er ekki vanþörf á því, miðað við það frumvarp sem hér liggur fyrir og það nefndarálit sem meiri hluti utanríkismálanefndar sendi frá sér, þar sem er einfaldlega talað máli Evrópusambandsins eða eftirlitsstofnunar EFTA og í andstöðu við fyrri afstöðu íslenskra stjórnvalda um að verja fullveldið og stjórnarskrána.