156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:00]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir góða ræðu þar sem mér fannst margt jákvætt koma fram. Ég ætla að vera síðasta manneskjan hér í kvöld til að halda því fram að þetta mál, þetta mjög svo lagatæknilega mál, sé borðleggjandi, það sé einfalt og að það feli í sér einhverja patentlausn á vandamálinu sem þarf einhvern veginn að leysa. Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann, þótt hann hafi komið aðeins inn á það í lokin: Þurfum við að standa vörð um EES-samninginn? Er hann okkur mikilvægur? Hvernig eigum við að koma í veg fyrir þennan lagalega vafa? Hvernig eigum við að koma í veg fyrir þetta stóra lagalega álitaefni sem upp er komið með öðrum hætti en lagt er upp með í þessu frumvarpi, sem svo fjölmargir virtir fræðimenn hafa mælt með að verði gert þar sem þeir draga til baka fyrri afstöðu sína í ljósi þess (Forseti hringir.) að dómaframkvæmd hefur vatnast út? Hvað eigum við að gera í staðinn?