Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Já, ég er þeirrar skoðunar að við eigum að standa vörð um EES-samninginn en ég er líka þeirrar skoðunar að við gerum það best með því að nýta það svigrúm sem hann veitir okkur til að ráða okkar málum sjálf, sérstaklega þegar aðstæður kalla á það, þegar aðstæður eru ólíkar á Íslandi, ólíkar því sem aðsenda regluverkið miðar við. Það er ekki til þess fallið að styrkja samninginn, eins og ég nefndi aðeins í ræðu minni áðan, að fara að lifa í ótta við hann, að verða hræddur við það að nýta ákvæði samningsins, að verða jafnvel hræddur um það, eins og við sjáum nú gerast, að menn hafi ekki gefið nógu mikið eftir þegar loksins náðist meiri hluti á þinginu um að samþykkja samninginn.