156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:02]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég ætla að segja að við lítum þá EES-samninginn sömu augum. Ég held að við séum sammála um að réttaróvissa sé af hinu slæma og hana þurfum við að leysa en varðandi aðferðirnar til þess, þá erum við kannski ekki á sama máli. Ég vil hins vegar benda hv. þingmanni á að það að segja fólki, segja í raun almennum borgurum þessa lands að þeir verði bara að sækja rétt sinn, eins og mér fannst hv. þingmaður gefa í skyn að hann væri að meina, að þegar fólk verði fyrir tjóni verði það bara að fara í mál við ríkið með tilheyrandi kostnaði og með tilheyrandi tímalengd — við getum ekki boðið Íslendingum upp á það. Hann tekur afstöðu til greinar sem Markús Sigurbjörnsson skrifaði árið 2014 en skeytir einhvern veginn engu um það að sú grein (Forseti hringir.) á í rauninni ekki lengur við í ljósi þess að dómaframkvæmd hefur vatnast út. (Forseti hringir.) Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann hafi lesið grein Þorgeirs Örlygssonar og Benedikts Bogasonar frá 2024 og kynnt sér efni hennar.