Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þekki efni þessara greina og flest það sem hefur verið skrifað um bókun 35 harla vel og mun fara mun nánar yfir það næstu daga og eftir atvikum vikur eða mánuði. En ég get ekki annað en gert athugasemd við það sem hv. þingmaður nefnir hér og ég kom aðeins inn á í ræðu minni, að það regluverk sem komi að utan sé á einhvern hátt betra en hitt og tryggi fólki meiri rétt. Ef svo er þarf bara að laga íslenska regluverkið, þá þarf bara að laga íslensku lögin þannig að þau tryggi réttinn best. Annars er hættan sú að þar sem íslensk lög, sniðin að íslenskum aðstæðum, eru betur til þess fallin að tryggja réttinn en evrópska regluverkið, þá eigi evrópska regluverkið að vera ofan á. Það er það sem lagt er til með þessu frumvarpi.