156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni prýðilega ræðu. Eitt sem hann nefndi í sínum málflutningi var það að hann teldi að ef ákvæði eins og hér er lagt til hefði verið sett í lög um Evrópska efnahagssvæðið á sínum tíma þá hefði samningurinn ekki náð fram að ganga. Ég er ekkert viss um að ég sé sammála þessu. Ef við horfum á víglínurnar í málinu í dag þá er það nú kannski þannig að þeir sem helst hafa horn í síðu þessa frumvarps eru aðilar sem ég myndi almennt telja hafa þá heimssýn að þeir myndu kannski ekki endilega vera á græna takkanum á sínum tíma þegar málið var samþykkt. Þannig að ég ætla að spyrja þingmanninn: Hvað hefur hann fyrir sér í því að þetta mál hefði ekki náð fram að ganga ef lögin hefðu verið sett með þessum hætti og getur hann fullyrt að það hafi verið hugur þeirra sem samþykktu málið á sínum tíma?