156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:08]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gefa einum af þeim þingmönnum sem samþykktu samninginn á sínum tíma orðið, með leyfi forseta:

„Þegar EES-lögin voru sett fyrir 30 árum sáum við sem þá fjölluðum um málið í utanríkismálanefnd alþingis ekki fyrir að dómarar mundu túlka 3. gr. EES-laganna á þennan veg. Afstaða okkar birtist í greinargerð með frumvarpinu en í áranna rás hafa dómarar talið texta lagagreinarinnar stangast á við orðalagið í greinargerðinni. Hafa þeir eðlilega sett lagatextann skör ofar en það sem í greinargerðinni segir. Frumvarpinu sem hér er til umsagnar er ætlað að leiðrétta þetta.

Mér sýnist frumvarpstextinn ná því markmiði.“

Í lokin leggur bréfritari til að frumvarpið verði afgreitt núna á vorþinginu, þetta var sett fram fyrir síðasta þing. Undir þetta ritar Björn Bjarnason. Mig langar mig að spyrja: Er það skoðun hv. þingmanns að Björn Bjarnason sé einn af þeim sem er haldinn þessari ESB-þráhyggju sem hann nefndi hér í ræðustól áðan?