156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:10]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil nú byrja á að þakka fyrir ágæta ræðu og sögufróðleik. Það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann er hvort hann sé ekki að gera heldur mikið úr þessu frumvarpi vegna þess að ég get ekki séð að það sé verið að innleiða, hvað á maður að segja, neinar nýjar skuldbindingar heldur snýst þetta mál fyrst og fremst um það að þær skuldbindingar sem hafa verið réttilega innleiddar í íslensk lög gangi þá framar heldur en önnur lög og það sé í samræmi við 3. gr. EES-laganna eins og þau voru túlkuð í byrjun, en síðan fór túlkunin hjá Hæstarétti í þá átt að þetta væri ekki fullnægjandi, eins og kom fram hjá hv. framsögumanni. Það er spurningin, hvort hann sé ekki að gera heldur mikið úr þessu máli með hliðsjón af því að það sé ekki, alla vega svona fljótt á litið, (Forseti hringir.) verið að innleiða nýjar skuldbindingar með þessu frumvarpi.