Evrópska efnahagssvæðið.
Jú, það er verið að innleiða þetta vegna þess að túlkun Hæstaréttar nú um stundir hefur að einhverju leyti breyst, að því er virðist, vegna þess að áður taldist 3. gr. í EES-samningnum alveg fullnægjandi til að þetta ákvæði, sem er hluti af EES-samningnum, væri í gildi. En nú eru þau skilaboð komin fram að það þurfi að fara í þessa formgerð til þess að þetta ákvæði sem var innleitt í EES-samninginn, þessi bókun 35, fái fullnægjandi lagastoð. Þess vegna langar mig að spyrja í framhaldinu og fá þá skýrari svör: Hvað kemur þá í staðinn? Eru menn tilbúnir að varpa þessum samningi fyrir róða ef það kemur á daginn, eins og virðist nú vera ljóst, að það þurfi að uppfylla þetta lagaskilyrði? Ég held að svarið sé að svo sé augljóslega ekki og (Forseti hringir.) þess vegna finnst mér, í ljósi þess að það sé kannski ekkert skýrt að það sé verið að taka á sig nýjar skuldbindingar heldur er bara verið að formgera það sem var í upphafi, að það sé teflt á tæpasta vað með svo mikla hagsmuni.