156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:14]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Hvað kemur í staðinn? Það kemur alla vega ekkert í staðinn fyrir stjórnarskrána eins og samflokksmaður hv. þm. Eyjólfur Ármannsson getur eflaust útskýrt fyrir flokksbróður sínum. Ég mun fjalla nánar um þetta í seinni ræðum, herra forseti, en hv. þm. Eyjólfur Ármannsson gerði ítrekað mjög skilmerkilega grein fyrir því hvers vegna þetta að hans mati stangaðist á við stjórnarskrána og að ekki væri hægt annað en að leyfa stjórnarskránni að njóta vafans, eins og það var orðað. Sumir telja reyndar að það sé enginn vafi á að þetta gangi gegn stjórnarskránni. Sumir telja það óljóst. En eitt af því sem er nefnt í bréfunum til Evrópusambandsins og ESA, sem ég gat um áðan í vörnum íslenskra stjórnvalda, var einmitt þetta með stjórnarskrána og þar er til að mynda bent á að Þýskaland hafi ekki viljað (Forseti hringir.) fallast á kröfu Evrópusambandsins sem að mati Þjóðverja gengur gegn þeirra stjórnarskrá.