156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:17]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Áður en Björn Bjarnason eyðir nóttinni í að blogga um þetta, þá ítreka ég það sem ég sagði áðan, að ég tel ekki að hann sé með ESB-þráhyggju. Hún er aðeins annars eðlis og ég hef þegar gefið það til kynna að ég sé til í að velta vöngum um það hér þegar fram líða stundir í þessari umræðu.

Hvað varðar spurningu hv. þingmanns, þá telur núverandi Hæstiréttur, í ákveðinni mótsögn við fyrri Hæstarétt, að það sé óskýrleiki í þessu. En Hæstiréttur, og það er aðalatriðið, er ekki að segja Alþingi að það eigi að breyta lögum með tilteknum hætti. Það er kallað eftir því að það verði skýrara til hvers er ætlast af réttinum og það er ekkert út á það að setja að Hæstiréttur vilji að mál séu skýr.