156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:18]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég vænti þess að hann fari betur í túlkun sína á dómi Hæstaréttar síðar í þessum umræðum. Ég má til með að spyrja örstutt út í aðrar sviðsmyndir sem hv. þingmaður teiknaði upp, m.a. vegferð sem gæti mögulega endað fyrir EFTA-dómstólnum sem eru reyndar meiri líkur á en minni. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann út í það hver viðhorf hans séu til þess að við létum reyna á þá vegferð og kannski ekki síður hvort hv. þingmaður hafi velt upp þeirri sviðsmynd hvað taki þá við, sem er heldur ekkert ólíklegt, ef málið tapast fyrir EFTA-dómstólnum.