156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:37]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég er nú svo heppin að vera í flokki þar sem fólk má hafa mismunandi skoðanir og kannski takast aðeins á um þær þótt við séum í grundvallaratriðum sammála um öll grundvallaratriði. Það tel ég bara eðlilegt og ég lét þessa skoðun mína alveg í ljós, ég varð undir á þeim tíma og það er bara þannig. Ég er mjög glöð yfir því að þegar bæði hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Inga Sæland, og hæstv. innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, skoðuðu málin betur og „grundigt“ þá voru þau menn að meiru vegna þess að þau sáu hvað var í gangi og skiptu um skoðun. Það gerist sem betur fer og ég líka, svo það sé sagt, af því að ég hafði þessa skoðun. Ég er ekki svo skyni skroppinn að ég haldi að maður þurfi að vera 100% sammála um allt til þess að geta tilheyrt stjórnmálaflokki. Ég er ekki einu sinni 100% sammála manninum mínum um allt. [Hlátur í þingsal.] Ég meina, þetta er bara þannig. Við bara tökumst á um mál og við erum í grundvallaratriðum sammála og það er þannig sem við finnum okkur stjórnmálaflokk, vinnum þar saman, reynum að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og á endanum þá vann mitt sjónarmið í þessu tilfelli, (Gripið fram í: Vúhú.) þó að það hafi ekki endilega farið í gegnum mig. Takk.