156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:39]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er þá komið á hreint að það er margt í mörgu og það eru breið sjónarmið innan Flokks fólksins, ég þekki það vel, en þá ættu kannski kosningaprófin að endurspegla það næst. Þið hafið það kannski í huga í Flokki fólksins: Við stöndum flest gegn bókun 35. Við stöndum sum hver gegn bókun 35. Við eigum eftir að taka afstöðu til bókunar 35. Mér dettur það helst í hug. En hv. þingmaður svarar þó ekki spurningu minni varðandi opinbera afstöðu annarra hv. þingmanna, því að ég spurði sérstaklega að því hvort hv. þingmaður talaði hér fyrir sig en mér fannst hún gefa það í skyn að það væru allir komnir á sama mál; henni hefði e.t.v. núna tekist að sannfæra flokksfélaga sína. Af því að það er svo stutt síðan við vorum hér með hæstv. ráðherra Eyjólf Ármannsson, sem hv. þingmaður minntist á hér í svari sínu, þar sem hann lýsti yfir algerlega gagnstæðri skoðun. Þannig að þetta er ennþá svolítið ruglandi, ekki bara fyrir fólk sem tekur kosningapróf og fær þar upp kannski uppgefið Flokk fólksins heldur líka okkur sem sitjum hér á þingi.