156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:44]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hvað, ef og hefði og allt það — ég bara veit það ekki. Ég held að ég hefði í sjálfu sér ekkert endilega komið persónulega mikið verr út úr því þó að ég hefði þurft að standa undir þessari rúmlega hundrað prósenta hækkun sem varð á láninu mínu, þegar það fór úr 30,4 millj. kr. upp í 74 millj. kr., ef ég man rétt. En það nefnilega lækkaði svo. En svo var öllum þessum vöxtum skellt á og öllu þessu dóti og skellt ofan á höfuðstólinn eins og ekkert væri og allt það. Það fór mjög illa með okkur. Ég veit það ekki. En ef lánin hefðu verið lögleg þá hefði náttúrlega margt farið á annan veg en ég get ekki svarað fyrir það. En þau voru það ekki.