156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:46]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Gengislánin voru ekki lögleg vegna þess að íslensk lög, íslenskur lagatexti, voru skýr um það að gengislán væru óheimil og viðskiptavenja fékk ekki vikið til hliðar þeim skýra lagatexta. Ég vil kannski reyna að kjarna frekar spurninguna til hv. þingmanns: Hefur hún ekki áhyggjur — ég veit að núna horfir hún bara á réttindi neytenda og allt það góða sem við verðum hugsanlega af af því að við höfum ekki innleitt reglur Evrópusambandsins samkvæmt EES-samningnum.

Telur hv. þingmaður ekki eðlilegast að við innleiðum með skýrum hætti lagareglur hér og lögum íslenska löggjöf, það er það sem ég vildi sagt hafa, að þeirri löggjöf sem við viljum innleiða hér en höfum í bakhöndinni þann (Forseti hringir.) möguleika að bíða með að innleiða löggjöf sem ekki hentar okkur á hverjum tíma?