Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Við hefðum náttúrlega þurft að vera búin að innleiða þessa Evróputilskipun um að gengistryggð lán væru leyfileg, við hefðum þurft að vera búin að innleiða það inn í íslenskan rétt. Bankarnir vildu fá það innleitt árið 2001, að mig minnir, og fengu það ekki. Ég veit ekki hvort Alþingi Íslendinga hefði höndlað það með öðrum hætti, ég hef ekki hugmynd um það, en menn töldu greinilega að þetta væri ekki sniðugt fyrir íslenskt hagkerfi á þeim tíma. En samt var þetta gert og þeir einu sem þurftu að taka afleiðingum af því, brotunum sem allir vissu um, voru þeir einu sem voru í rauninni fórnarlömb brotanna, neytendur sem höfðu ekki hugmynd um að þetta væri ólöglegt. Hvernig átti þeim að detta það í hug? Þú ferð ekki í banka og segir: Ég ætla aðeins að athuga hvort það sé löglegt sem þú ert að bjóða mér. Það hefði engum dottið í hug fyrir þennan tíma. Annað er: 36. gr. var innleidd í íslensk lög með skýrum hætti. (Forseti hringir.) Af hverju var ekki dæmt eftir henni? Af hverju var hún hunsuð þótt hún væri þarna?