156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:50]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er merkilegt hvað Sjálfstæðisflokkurinn er svakalega upptekinn af Flokki fólksins í þessum málum. Ég skil ekki að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki bara segja hver hans eigin afstaða er og þingmenn hans skuli ekki bara segja það hérna en vera alltaf að spyrja út í afstöðu þingmanna Flokks fólksins. Ég get ekkert svarað fyrir það hvað hæstv. iðnaðarráðherra Eyjólfur Ármannsson sagði hérna í einhverjum umræðum í febrúar. Ég hef bara ekki hugmynd um það. Ég veit ekkert hvað hann sagði. Sjálfstæðisflokkurinn veit að það þarf stundum að gera málamiðlanir í ríkisstjórn og það væri kannski gaman að vita af hverju þetta fór ekki í gegn í þeirra ríkisstjórn. Það var nú kannski út af — hvað var það? Sundrungu í ríkisstjórninni sem var svo mikil að hún blasti við hvert sem litið var. Það er engin sundrung í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Kannski hugsar fólk aðeins svona: Ó, ég þarf kannski örlítið að endurskoða afstöðu mína hér eða hér, eitthvað slíkt. Hæstv. ráðherra Eyjólfur Ármannsson mun greiða atkvæði með bókun 35. Ég held að það sé enginn vafi á því og hann hefur lýst því yfir. Hann fór í gegnum málið, hann endurskoðaði afstöðu sína og hann getur alveg sætt sig við þetta. Mér finnst, eins og ég segi, áhyggjur þingmanna Sjálfstæðisflokksins af Flokki fólksins vera orðnar pínu spes.