156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:53]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þingmenn Flokks fólksins taka afstöðu út frá hagsmunum fólksins í landinu. Ég get í sjálfu sér ekki lofað því að skyldur hæstv. ráðherra Eyjólfs Ármannssonar haldi honum ekki frá deginum þegar atkvæðagreiðslur verða hér í þessu tiltekna máli, ég get að sjálfsögðu ekki lofað því, en eigi hann heimangengt þá hefur hann sagt að hann muni styðja þetta mál. Það er þannig í ríkisstjórn, eins og ég veit að hv. þingmaður veit. Ég efast ekki um að hún hefur þurft að greiða atkvæði með málum sem hún hefur ekki verið 100% fylgjandi. Það er bara þannig. Stundum gerist það. Og sem betur fer veit ég ekki betur en að eftir endurskoðun sé Eyjólfur bara nokkuð sáttur við þetta. Kannski ekki 100%, ég get ekki lofað því, en ég held að hann viti að við séum ekki að brjóta stjórnarskrána.

Ég held að við þurfum að horfast í augu við það líka að búið er að þyrla upp svakalegu ryki í allri þessari umræðu (Forseti hringir.) um hluti sem engu máli skipta og standast ekki skoðun um stjórnarskrárbrot og annað vegna þess að allt sem er innleitt (Forseti hringir.) verður fyrst að fara í gegnum Alþingi Íslendinga og vera innleitt í íslensk lög til þess að bókun 35 hafi áhrif á það. Það er bara lagasetning sem við erum að gera á hverjum degi.