Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Það er virkilega ánægjulegt að koma hingað upp í kvöld og ræða EES-samninginn á föstudagskvöldi hér í þinginu. Ég er í sjálfu sér þeirrar skoðunar að við mættum gera meira af því að ræða þjóðréttarlegar skuldbindingar okkar og Evrópumál almennt. Þetta er langsamlega mikilvægasti fríverslunarsamningur okkar fyrr og síðar. Þegar við tölum um EES-samninginn þá skerpum við á því sem hann færir okkur og við höfum sem Íslendingar oft gengið að sem vísu. Þetta er fjórfrelsið. Það er aðgengi einstaklinga og fyrirtækja að því. Það á að tryggja hér rétt fólks til frjálsrar farar, frjálsra þjónustuviðskipta og vöruviðskipta og frjáls flæðis á fjármagni. Við höfum upplifað það þegar þessir hlutir voru teknir af okkur sviplega, hvort sem það er vegna gjaldeyrishafta eða varúðarráðstafana í heimsfaraldri og við söknuðum þess að búa við þetta. Við höfum líka séð hvernig Bretar hafa þurft að kljást við gerbreytta heimsmynd eftir að þeir tóku þá ákvörðun að ganga úr Evrópusambandinu og stjórnmálamenn sögðu margir hverjir í aðdraganda þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu sem leiddi til brottfarar þeirra úr Evrópusambandinu 2016 að þeir hefðu áhuga á því að gerast hreinlega meðlimir í EFTA eða taka upp EES-leiðina eins og Norðmenn og Íslendingar. Við vitum öll hvernig það fór.
Við erum virkilega heppin með þennan samning og við þurfum að rækta hann. Í ljósi þess sem talað var um hér áðan af hálfu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem mér fannst dálítið einkennandi fyrir þá nálgun sem margir í Miðflokknum hafa tekið í þessum málum, að það sé eitthvað að óttast — það var reyndar mikið talað um að við ættum ekki að óttast Evrópusambandið eða EES-samstarfið en það er samt sem áður mjög mikill ótti fólginn í því að vera á móti því að skerpa á þeirri lögskýringarreglu sem forgangsregla EES-skuldbindinga hefur í för með sér, því að þetta sem við ræðum hér í dag ítreka ég að fjallar um þær skyldur sem íslenska ríkið tekur á sig til að Íslendingar og fyrirtæki hér á landi geti gengið að þessum réttindum sem ég nefndi hér áðan sem vísum.
Það er náttúrlega alls ekkert eitthvað klippt og skorið í þessu. Við vitum að EES-samningurinn er ekki bara EES-samningurinn eins og hann var samþykktur og undirritaður árið 1992 og tók gildi hér 1994. Þetta er auðvitað afleidd löggjöf af því sem samþykkt er upphaflega á Evrópuþinginu og hefur síðan fengið gildi hér sem sett lög á Alþingi eða stjórnvaldsfyrirmæli. Það er alls konar flóra í þessu og heilt yfir finnst mér — og nú er ég búin að vera að fylgjast með Evrópuumræðunni mjög lengi, í raun og veru bara alla mína mannvitstíð — Evrópuskeptíkerar á Íslandi vera mjög sjaldan, og það heyrir til algerra undantekninga, í rauninni að amast við þeirri löggjöf sem verið er að innleiða hverju sinni. Ég ætla ekki að segja að það séu ekki til dæmi þess, það eru svo sannarlega til dæmi þess, en merkilega lítið um það miðað við það hvað fólk setur sig mikið upp á móti akkúrat þessu sem við ræðum hér í dag.
Þetta er skylda íslenska ríkisins til þess að leiða EES-löggjöf í íslenskan landsrétt til að tryggja samræmi — og þetta er mikilvægt — í löggjöf á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Það er bara verið að skerpa á því með skýrari og afmarkaðri forgangsreglu EES-réttarins. Þetta er hin svokallaða forgangsregla EES-réttarins sem vel að merkja er ekki sama regla og bein réttaráhrif Evrópuréttarins, ESB-réttarins, sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var að vísa til hér sem var einhvers konar forsenda fyrir því, þ.e. þessi forgangsregla EES-réttarins var einhvers konar forsenda fyrir því að EES-samningurinn var samþykktur í þeirri mynd sem við þekkjum hann í dag eða í þeirri mynd sem hann var samþykktur í upphafi tíunda áratugarins. Þetta er bara mjög mikilvægt og ég get svo sem komið inn á það síðar eða í andsvörum ef einhver vill ókeypis lögfræðitíma.
Ég skal bara fara aðeins yfir þetta. Forgangsregla EES-réttarins er fólgin í því að á Evrópuþinginu eða á vettvangi stofnana Evrópusambandsins er samþykkt löggjöf. Hún hefur ekki sjálfkrafa gildi hér sem réttarheimild eða lög með sama hætti og ef um væri að ræða aðildarríki ESB. Þetta er mjög mikilvægt. Þetta er ofsalega mikilvægt vegna þess að það eru ekki allir sem eiga sæti hér inni í þessum sal með þetta nákvæmlega á hreinu. Það verða allir hér, sem taka þátt í þessari umræðu, að vera meðvitaðir um þetta vegna þess að til þess að lagaákvæði eða stjórnvaldsákvæði hafi gildi hér sem réttarheimild þá verður það að fara í gegnum hið háa Alþingi. Þetta hefur vatnast út í framkvæmd, hvernig við tökum á því þegar betri réttur, ég ætla bara að segja það, íslenskra ríkisborgara samkvæmt EES-löggjöf sem ekki hefur verið innleidd réttilega hér á landi gerir það að verkum að viðkomandi verður fyrir tjóni, þ.e. hann getur ekki sótt réttindi sín samkvæmt Evrópuréttinum. Þetta er auðvitað eitthvað sem er rakið ágætlega í nefndarálitinu með frumvarpinu og dómur Hæstaréttar frá því í febrúar 2024 í hinu svokallaða fæðingarorlofsmáli staðfesti bara það sem marga hafði grunað lengi, þ.e. að við höfum ekki innleitt bókunina með réttum hætti, réttaráhrif bókunarinnar ná ekki fram að ganga vegna þess, og þetta er ólíkt því sem gerst hefur í Noregi. Það er bara mjög margt sem hefur valdið því í túlkun Hæstaréttar að þýðing hennar og upphaflegt markmið hefur vatnast út í framkvæmd. Af hverju gerðist það? Það getur eiginlega enginn svarað því nákvæmlega. Sem betur fer eigum við dómstóla sem eru sjálfstæðir og eru bara samviskusamir í því hvernig þeir túlka ákveðnar réttarheimildir. Við eigum okkar smáríki hér sem okkur þykir vænt um og við eigum lögspekinga á þessu landi sem túlka hlutina stundum með öðrum hætti en starfsbræður þeirra og -systkini í Noregi og það er allt í lagi. Við vitum líka að í Noregi er sérstakt ákvæði í þarlendri stjórnarskrá sem veitir heimild fyrir valdframsali vegna þjóðréttarlegra skuldbindinga sem er ekki til staðar hér og það hefur líka áhrif á þessa umræðu alla. Það er bara mjög mikilvægt að fólk hafi það á bak við eyrað.
Það er svo merkilegt að fyrir nefndina komu margir fræðimenn sem við berum mikla virðingu fyrir og hafa ekki gefið sig út fyrir að vera einhverjir sérstakir Evrópusinnar í gegnum tíðina, svo sannarlega ekki, en fræðimenn í Evrópurétti eru þau og það var eins og við manninn mælt að þau sögðu öll hið sama, þ.e. þau sem höfðu tök á því að koma fyrir nefndina. Fyrir 10–15 árum síðan var þetta frekar simpelt, var frekar borðleggjandi. Við þurftum ekki að gera breytingar á lögunum sem innleiddu EES-samninginn hér. Dómaframkvæmd Hæstaréttar hefur breytt þessu. Nú þurfum við að rétta af kúrs og skerpa á þýðingu forgangsreglunnar samkvæmt EES-samningnum. Þess vegna vil ég að það sé líka skýrt — eða það er alla vega mjög skýrt fyrir mér, ég vil bara frábiðja mér einhverjar athugasemdir um fræðaskrif frá 2014 sem eiga að hafa einhverja fúndamental þýðingu í þessu máli vegna þess að það hefur það margt gerst síðan. Hér hafa fallið dómar sem hafa gjörbreytt þeim forsendum sem voru til staðar í afmælisritum EFTA-dómstólsins árið 2014 eða fyrr. Það er bara þannig. Það er ekkert hægt að þræta við helstu fræðimenn Íslands um þetta. Þetta kemur ekki frá mér. Þetta kemur frá þeim sem hafa gefið sig að þessari fræðigrein og felst ekki í einhverri þjónkun við Evrópusambandið.
En já, ég skal glöð viðurkenna að mér finnst fullkomlega samræmast mínu hlutverki að tala fyrir því að við höldum áfram öflugu samstarfi við okkar nánustu viðskiptaríki í gegnum EES-samninginn og Evrópska efnahagssvæðið og að við stefnum því ekkert í einhverja tvísýnu sem við ætlum síðan bara að henda yfir á almenna borgara þessa lands sem verða af réttindum sínum og láta þau þræla fyrir dómstólum hérlendis, fyrir þremur dómstigum, og Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel með tilheyrandi kostnaði vegna þess að það er ekki einn einasti einstaklingur sem fer út í það sem kemur út á sléttu þó að hann vinni málið sem er alls ekki gefins. Og getið þið ímyndað ykkur hvað felst í því að fara í mál við ríkið? Er einhver hér inni sem getur talað fyrir því sem einhverri raunhæfri lausn fyrir íslenskan almenning að viðkomandi þurfi bara að sækja rétt sinn með því að fara í mál við íslenska ríkið? Það er ekki skemmtilegt.
Fyrir þau sem hafa nefnt það sem lausn að við eigum bara að laga lögin, að fæðingarorlofslögum megi bara breyta— já já, það má alveg fara í svoleiðis, hvað segir maður, ekki bútasaum, það er ljótt að gera lítið úr honum vegna þess að hann er stórkostlegur, en þetta heitir að stoppa í einhver göt. Þetta er letileg nálgun á stærra verkefni sem okkur ber skylda til þess að leysa með snyrtilegum hætti, með vönduðum, metnaðarfullum hætti sem segir bara einfaldlega það að þegar almenn lög í íslenskum rétti stangast á við almenn lög sem leiðir af Evrópurétti og eru innleidd hér með lögum í gegnum þá kanala sem við eigum hér á þessu ágæta þingi, þegar þau stangast á þá skal ákvæði Evrópugerðarinnar hafa forgang, og svo þegar stjórnvaldsfyrirmæli — þetta er mjög mikilvægt líka, það er mjög mikilvægt hér sem ég segi — stangast á við önnur stjórnvaldsfyrirmæli sem leiðir af Evrópurétti þá skuli stjórnvaldsfyrirmæli á grundvelli tilskipunar líka hafa forgang, vegna þess að þau fela oft á tíðum í sér betri rétt fyrir einstaklinginn en leiðir af innlendu ákvæði vegna þess að það tryggir hér ákveðin réttindi samkvæmt EES-samningnum. Ef eitthvað leiðir af sér betri rétt fyrir einstaklinginn — og þetta hefur verið nefnt, þessu hefur verið velt upp, hvað ef EES-réttur er meira íþyngjandi? Já já, stundum er það þannig. Það er alveg sjálfsagt að velta því upp. Þau tilfelli eru færri en þau eru alveg til. En þá verðum við líka að átta okkur á því að það verður hægt að bregðast við því með öðrum hætti, þ.e. með því að skerpa á einhvers konar sérreglu.
Hér hefur verið talað um gildrur. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson minntist á að það væri einhvern veginn verið að segja: Já, nei, hérna er verið að leiða okkur í gildru með því að segja að Alþingi geti sett lagaákvæði sem ganga markvisst gegn EES-samningnum, það sé brella vegna þess að það sé ekki hægt. Það hefur verið gert og það var meira að segja gert frekar nýlega en það þarf bara að tiltaka það sérstaklega í lögskýringargögnum eins og var gert í þeim tilvikum þar sem íslenskum ferðaskrifstofum var gert kleift að endurgreiða þeim sem keypt höfðu þjónustu af þeim í heimsfaraldrinum. Íslenskum ferðaskrifstofum var gert kleift að endurgreiða einstaklingum og viðskiptavinum sínum í formi innleggsnótu. Það var tekin sérstaklega afstaða til þess að slíkt stangaðist mögulega eða bara beinlínis á við tilskipun um loftferðir og hópferðaþjónustu. Vitið þið hvað gerðist? Ekki neitt. Ekkert. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, var fullkomlega meðvituð um þessa nálgun. Hófu þeir frumkvæðisathugun? Nei. Vegna þess að íslenski löggjafinn hefur kannski ekki alltaf lokaorðið en hann hefur svo sannarlega völd til þess að taka afstöðu til ákveðinna þátta á grundvelli séríslenskra hagsmuna og þetta er bara mjög mikilvægt. Ég hafna því að við leysum þetta mál með því að segja bara fólki að fara í mál við ríkið þegar skaðinn hefur þegar orðið. Það er bara mjög aumt réttarríki og það er ekki jafnræði, það er ekki ábyrgt og það stappar nálægt valdníðslu eins og einhver komst svo ágætlega að orði.
Forseti. Vita menn sem leggja svona til eitthvað hvað felst í því að fara í mál við ríkið? Ég bara ítreka: Það er svo stórkostlega slæmt að skutla ábyrgðinni yfir á almenna borgara í þessu landi.
Það verður að segja, miðað við það sem fram hefur komið í nefndaráliti og það sem við fórum yfir í hv. utanríkismálanefnd, að það er hafið yfir allan skynsamlegan vafa að frumvarpið sem við ræðum hér í dag fari ekki í bága við íslenska stjórnarskrá. Þetta stenst íslenska stjórnarskrá. Þetta hefur verið metið sérstaklega og ítarlega, bæði af starfshópi sem samdi frumvarpið, virtum lögfræðingum, við getum nefnt hér nöfn á borð við Davíð Þór Björgvinsson prófessor, Róbert Spanó, fyrrverandi forseta Mannréttindadómstóls Evrópu, Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseta Hæstaréttar og dómara við EFTA-dómstólinn, og svo marga fleiri. Við ræddum líka álitaefnið við þá gesti sem komu fyrir nefndina. Álitið er samdóma og í samræmi við þá fyrirætlan sem lagt var upp með í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar, að forgangsregla EES á í lok dags ekki að takmarka lagasetningarvald Alþingis. Af hverju er það svo? Vegna þess að reglan snýst um árekstur tveggja lagaákvæða sem Alþingi hefur sjálft sett og stjórnvaldsfyrirmæli sem innleidd eru af EES-rétti. Það verður að gera greinarmun á þessu tvennu. Stjórnvaldsfyrirmæli Evróputilskipana trompa ekki almenn lög. Alþingi getur hins vegar, eins og við höfum fjallað um hér í dag, valið að samþykkja lög sem ganga að einhverju leyti gegn EES-reglum. Það verður ekki lögð nógu mikil áhersla á það, ætli menn að fara hér með miklar yfirlýsingar um að hér muni bara flæða inn eitthvað sem við munum ekkert hafa neitt um að segja. Þetta er ekki rétt.
Virðulegur forseti. Forgangsregla EES nær aðeins til íslenskra laga sem réttilega innleiða EES-reglur en ekki til óinnleiddra ESB-reglna, ekki til stjórnarskrárinnar og ekki til þess að stjórnvaldsfyrirmæli gangi framar almennum lögum. Hún hefur ekki áhrif á rétthæfi réttarheimilda. Hún tryggir einfaldlega að einstaklingar og fyrirtæki hér á landi fái notið reglna sem leiðir af EES-samningnum. Þetta er ekki bara það sem við skuldum samningsaðilum okkar, samstarfsaðilum okkar í EES, innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem eru samstarfsaðilar okkar, ekki gagnaðilar eins og komist var að orði áðan, þetta eru samstarfsaðilar okkar, mikilvægustu samstarfsaðilar okkar, við erum að gera þetta líka fyrir íslenska borgara sem eiga að njóta þessara réttinda. Við verðum að standa fyrir því að þau njóti þessara réttinda og vera með þeim í liði, ekki skutla ábyrgðinni yfir á þau.
Við höfum áralanga reynslu af EES-samstarfinu. Við vitum auðvitað betur í dag en árið 1992 eða 1994 hvernig kerfið okkar virkar í reynd og hvernig samningurinn hefur þróast, hvar veikleikarnir liggja, vegna þess að auðvitað eru alltaf einhverjir núansar, annars væri ekki neitt virði í því að vera að standa í þessu lífi ef það væru aldrei einhverjir núansar til að leysa úr og við stöndum frammi fyrir því hér akkúrat í dag. Við ættum bara að gera það snyrtilega. Þetta er ekki eitthvert einfalt mál, þetta er ekki eitthvert skemmtilegt mál en þetta er mikilvægt mál. Við verðum að bregðast við túlkun Hæstaréttar sem hefur vatnast út í framkvæmd. Það hefði verið óskandi að þurfa ekki að leggjast í þetta en hér erum við stödd. Þess vegna legg ég til að við gerum þetta með þessum snyrtilega hætti og förum að eyða tíma okkar í að rífast um eitthvað annað en akkúrat þetta vegna þess að þetta er formalítet. Við ættum ekki að kokka upp einhvern storm sem við vitum að er ekki neinn fótur fyrir.