156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:15]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir ræðuna. Ég tók sérstaklega eftir því að hún sagði að málið væri ekki klippt og skorið. Þannig að mig langaði að spyrja hana og heyra frá hv. þingmanni ef hún gæti aðeins komið inn á það hvað henni þykir neikvætt eða telur að sé ekki heppilegt ef við samþykkjum samninginn, því mér fannst í ræðunni hún aðallega tala um jákvæðu hlutina við bókun 35. Svo langar mig líka að spyrja hana — í ljósi þess að árið 2019 var hér samþykkt þingsályktunartillaga þess efnis að sæstrengur yrði ekki lagður nema með samþykki Alþingis. Með samþykki bókunar 35 má sú þingsályktunartillaga sín lítils, geri ég ráð fyrir. Nú er orka ólík öllu öðru. Við sjáum það á tímum stríðs að hún er eitthvað sem yfirleitt ætti að taka út fyrir sviga. Evrópa gerði þau mistök að huga ekki nógu vel að því, þannig að ég lít svo á að við eigum alltaf að taka orku út fyrir sviga. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún hafi ekki áhyggjur af þessu.

Svo langar mig að fagna því að umræða um þetta sé inni í þingsal og að hv. þingmaður fagni henni líka, að hún telji þetta mikilvæga umræðu. Þess vegna langar mig hér, af því að ég hef smá tíma, til að spyrja hv. þingmann að því hvort hún átti sig á því, þegar það liggur fyrir að þetta er mikilvægt, þetta er efni eða mál sem mun taka tíma í þingsal, við viljum fjalla vel um þetta, af hverju það er þá á dagskrá um hvítasunnuhelgi á föstudagskvöldi og laugardegi þegar þið stýrið dagskránni. Finnst ykkur þetta raunverulega mikilvægt eða eruð þið að reyna að fela umræðuna?