156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:18]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Þegar ég sagði í upphafi að málið væri ekki klippt og skorið, þá átti ég kannski öðru fremur við það að hér væri ekki um eitthvað sérstaklega einfalt mál að ræða. Ég held að hér sé verið að gefa því fullmiklar forsendur að halda því fram að mér finnist málið ekki jákvætt vegna þess að mér finnst það í grundvallaratriðum alveg gífurlega jákvætt, alveg eins jákvætt og mér finnst það að eiga varadekk í bílnum mínum þegar það er búið að springa á dekkinu mínu. Ekki það að mér hafi fundist eitthvað skemmtilegt að hafa lent í því að fá sprungu á dekkið en þá er gott að eiga varadekk. Tilfinning mín gagnvart þessu ágæta frumvarpi er af svipuðum meiði.

Varðandi hins vegar orkumál og þá stóru og miklu umræðu sem hefur skapast hér á þinginu, ekki á þessu löggjafarþingi heldur áður fyrr um veru okkar í EES gagnvart innleiðingu orkupakka sem kenndur var við tölustafinn 3 hér á árum áður, tel ég þá umræðu ekki eiga erindi í þennan þingsal akkúrat á þessum tímapunkti. Ég frábið mér að ræða það sérstaklega vegna þess að á því eru margir vinklar og við erum ekki að ræða það vegna þess að orkumál og þróun þeirra í evrópsku samstarfi er marglaga. Við vitum hins vegar mjög vel að það verður engum sæstreng komið á frá Íslandsströndum nema mikið breytist.

Varðandi það hvernig við komum inn í þessa umræðu hér á hvítasunnuhelgi, þá veit hv. þingmaður það vel að það er ekki við þessa ríkisstjórn eða þennan stjórnarmeirihluta að sakast að þetta mál er að koma til umræðu núna þegar langt er liðið á föstudagskvöld. Ég var búin að gera mig og græja í þessa umræðu laust eftir hádegi. Ef eðlilegt tempó hefði verið á þessari umræðu værum við að klára hana núna en hérna verðum við. Ég er svo sannarlega ekki mesti stuðningsmaður þess að þetta gangi langt inn í næstu viku (Forseti hringir.) og ég væri svo glöð að ræða þetta á einhverjum öðrum vettvangi og tíma en akkúrat núna.