156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:20]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Jú, þið hafið nefnilega dagskrárvaldið og þið ákváðuð að setja svona stórt mál á dagskrá sem þið vissuð að myndi ekki klárast fyrir klukkan fimm í dag, alveg sama hversu hratt aðrir liðir hefðu gengið. Þetta eru náttúrlega hálfgerðir útúrsnúningar. Hv. þingmaður segir að hér muni flæða inn eitthvað sem við höfum ekkert um að segja. Þá velti ég fyrir mér í hvernig tilfellum hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir telur að hún myndi vilja setja inn í íslensk lög sér klásúlu um að þetta eigi ekki við. Ég man ekki hvernig hún orðaði þetta með klásúluna, en í hvaða tilfellum? Varðandi það að hún telji að það eigi ekki að ræða orkumál í þessu samhengi, hvað eigum við þá að ræða? Þetta er mjög nátengt. Ég er að vitna í mál sem þetta mun hafa áhrif á og ég held að við ættum einmitt að fá fleiri dæmi sem þetta hefur áhrif á. Þetta er gríðarlega mikilvægt. Ég skil ekki og spyr eiginlega bara: Af hverju vill hv. þingmaður ekki ræða eða svara varðandi það að hún heldur að það verði ekki sæstrengur? En þessi þingsályktunartillaga var samþykkt af því fólk hafði áhyggjur. Hvað gerist ef hann kemur?