156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:21]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Með sæstrenginn, segjum sem svo „hýpóthetískt“ að það kæmi hér Evróputilskipun um að það skyldi vera sæstrengur frá Íslandi, gefum okkur það. Þá minni ég á það að það er í höndum Alþingis að samþykkja slíkt til þess að það hafi gildi í íslenskum rétti. Þetta er eiginlega ekki boðleg umræða. Þetta er bara algjörlega fráleitt.

Varðandi hins vegar dæmi þess að sett hafi verið lög sem ganga vísvitandi gegn EES-samningnum. Ég vísa aftur og ég vona að hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hafi hlustað á ræðuna mína en það var svo sannarlega fordæmi fyrir því í ferðaskrifstofumálinu, þar sem frumvarp þáverandi ferðamálaráðherra í upphafi Covid-faraldurs hafði að geyma ákvæði í lögskýringargögnum sem voru eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Ljóst er að tillaga 1. mgr. fer í bága við skýr ákvæði tilskipunarinnar og kann þannig að brjóta gegn þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands, sbr. 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993.“

Þannig er nú það. Það eru skýr fordæmi fyrir því (Forseti hringir.) að gengið hafi verið gegn EES-samningnum og þá hefur þessi forgangsregla sem ég bið hv. þingmann um að reyna að skilja (Forseti hringir.) ekki gildi.