156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:23]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna hérna áðan. Mér finnst hv. þingmaður tala hérna hálfgert í yfirlætistón yfir þeim sem hafa áhyggjur af hlutunum þannig að hv. þingmaður ætti kannski að vanda orðaval sitt betur og sýna samþingmönnum sínum meiri virðingu í samtali hér í þingsal. Þingmaðurinn talar um „formalitet“, þetta sé bara „formalitet“, innleiðing á bókun 35. Letileg nálgun hjá þeim sem vilja virða stjórnarskrána, fullyrðir að þetta standist stjórnarskrána með vísan í fræðimenn, en rökstuðningurinn er enginn frá henni sjálfri. Þannig að það væri bara mjög fróðlegt að heyra rökstuðning frá hv. þingmanni varðandi það hvernig þessi áætlaða innleiðing stenst stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

Mig langar einnig að nefna það fyrst ég hef smá tíma eftir. Þetta er í raun og veru miklu stærra mál heldur en bæði Icesave-málið og þriðji orkupakki Evrópusambandsins sem hv. þingmaður gerði lítið úr áðan og sýndi samþingmanni í raun og veru — ja, ég ætla ekki að hafa eins stór orð og hv. þingmaður en mér líkaði ekki hvernig hún komst að orði. Verði þetta frumvarp að lögum er að verða til ný forgangsregla í íslenskum rétti og ég óska þess að hv. þingmaður skýri út, þar sem hún lætur líta út fyrir að hún þekki þetta mál í kjölinn, þannig að fyrir okkur sem eru hér í þessum sal og höfum áhyggjur af þessari áætluðu innleiðingu (Forseti hringir.) þá væri óskandi að hv. þingmaður gæti (Forseti hringir.) skýrt út fyrir okkur hinum hvernig þetta stenst stjórnarskrá án þess að vísa í eitthvað sem aðrir hafa sagt.