156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:28]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Fyrst hv. þingmaður les hér upp úr álitum fræðimanna þá ætla ég bara að gera slíkt hið sama. Þessi fræðimaður er fyrrverandi forseti Hæstaréttar, alla vega sá aðili sem neitað var að óska eftir að kæmi fyrir nefndina. Það var ekki einu sinni kannað hvort hann hefði tök á því. Hann byggði á stjórnarskránni sem ekkert hefur breyst frá 2014 og sagði, með leyfi forseta:

„Staðreyndin er hins vegar sú að ekki var mögulegt að ganga lengra innan þess ramma sem stjórnarskrá Íslands setur. Stjórnarskráin gerir hvorki ráð fyrir því að takmarka megi fullveldi lýðveldisins með framsali löggjafarvalds til alþjóðastofnana né að landslög, sem byggjast á alþjóðlegum skuldbindingum eins og EES-samningnum, geti eingöngu af þeim sökum öðlast ríkari stöðu en önnur almenn löggjöf.“

(Forseti hringir.) Þetta hefur ekki breyst frá 2014 þannig að hvað segir hv. þingmaður við þessu?