156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:29]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Mér finnst mjög mikilvægt að koma því á framfæri að ef maður les grein Markúsar Sigurbjörnssonar frá 2014, sem rituð var í afmælisriti EFTA-dómstólsins sem kom út það ár, þá er sú umfjöllun öðru fremur um þann skort á þeim lagaákvæðum sem eru í norsku stjórnarskránni en eru ekki til staðar í íslensku stjórnarskránni, þ.e. í 133. gr. norsku stjórnarskrárinnar. Þetta er mjög athyglisvert vegna þess að hún veitir miklu meira svigrúm. Útfærslan sem við búum við í gildandi lögum á þessu ákvæði dugar í Noregi. Síðan hafa liðið mörg ár og framkvæmd Hæstaréttar hefur vatnað út þetta sama ákvæði í reynd sem gerir það að verkum að við verðum að gera þetta svona. Og það er hægt að hrista hausinn. Svo vil ég líka koma því á framfæri að öllum umsagnaraðilum var boðið að koma (Forseti hringir.) til fundar við hv. utanríkismálanefnd, m.a. Markúsi Sigurbjörnssyni. Hann þáði ekki boðið þannig að þetta er ekki rétt.