Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir að taka þátt í umræðunni. Mér sýnist hún vera ein úr liði stjórnarþingmanna sem tekur þátt í umræðu í þessu stóra máli. Hún hefur líka það fram yfir marga þingmenn hér að vera löglærð og þess vegna langar mig aðeins að velta upp nokkrum lögfræðispurningum. Ég heyri að henni þykir mikið til margra fræðimanna koma sem hún hefur vitnað hér til og alveg örugglega hafa þeir margir margt til síns máls. En mig langar að heyra hvað henni sjálfri finnst. Hvað finnst henni sjálfri um samspil almennra laga og stjórnarskrárinnar í okkar réttarfari, þ.e. rétthæð réttarheimilda að þessu leyti? Telur hv. þingmaður það geta staðist að sett séu almenn lög sem fjalla um önnur almenn lög, og að löggjafinn veiti þessum almennu lögum sem sett eru forgang fram yfir önnur lög? Það er, að í íslenskri réttarframkvæmd og réttarfari verði vikið frá grundvallarreglunni um forgang, t.d. sérlaga umfram almennra laga, forgang yngri laga umfram eldri laga. Ég átta mig á því að þingið getur alveg samþykkt slík lög. Þingið samþykkir á hverju einasta kjörtímabili, hverju einasta löggjafarþingi, lög sem standast ekki stjórnarskrá, dellulög og alls konar lög sem ganga ekki upp þegar á hólminn er komið. En það sem ég er að spyrja um er hvort hv. þingmaður hafi þá trú að Hæstiréttur, ef á það reyndi, myndi veita almennri löggjöf, eldri löggjöf, forgang fram yfir nýja löggjöf um sama efni.