156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:36]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningu. Varðandi bréf stjórnvalda, ég biðst forláts en ég held að hér sé hv. þingmaður að tala um það bréf sem sent var í ráðherratíð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, ef ég man rétt. Ég get ekki sagt að það hafi mikla þýðingu akkúrat núna í þeirri vinnu sem við erum að leggja til núna, sem snýst um það — og hér förum við aftur í lögskýringarreglurnar sem mér finnst mjög skemmtilegt að tala um. En þá er auðvitað verið að gefa þessari sérstöku forgangsreglu EES-réttarins meira vægi í almennri túlkun sem verkfæri dómstóla heldur en lex specialis og lex posterior reglunum. Það er einfalda svarið við þessu. Ég er ekkert sérstaklega hrædd við það vegna þess að það er einfaldlega það sem lagt var upp með í upphafi þegar við gerðumst aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta er hluti af þeim skyldum sem okkur ber að grípa til til þess að tryggja samræmda túlkun, skýringu og útfærslu á samningnum á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. (Forseti hringir.) Fyrir mér er það einfaldlega mjög sanngjarnt verð að greiða fyrir þau réttindi sem við fáum í staðinn.