Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það er mér mikil ánægja að fá tækifæri til að fjalla um þetta mál sem er komið hér á dagskrá þetta föstudagskvöld. Ég vil byrja á því að nefna það í upphafi, þar sem ég hafði ekki tök á því að taka til máls við 1. umræðu þessa máls, var með lögmæt forföll hér í þingstörfum, að það kemur fram í athugasemdum í greinargerð með frumvarpinu að ég hafi verið í starfshópi sem þáverandi utanríkisráðherra skipaði í nóvember 2022. Þá starfaði ég sem lögmaður, ég átti ekki sæti á þingi þá, og var fengin til að sitja í starfshópi utanríkisráðherra til að semja þetta frumvarp. Samkvæmt erindisbréfi var erindið það að semja nákvæmlega þetta frumvarp, ekki að meta kosti og galla þess að semja svona frumvarp heldur einfaldlega að semja það, svo ég útskýri af hverju nafni mínu bregður fyrir í þessu frumvarpi. Af því geta menn ekki dregið þá ályktun að ég styðji efni þessa frumvarps. Það geri ég svo sannarlega ekki og hef tjáð mig um það opinberlega á síðasta kjörtímabili ítrekað, ekki of ítrekað, þetta er ekki á heilanum á mér, en ég hef komið því á framfæri opinberlega. Það þarf enginn að velkjast í vafa um það hvaða skoðun ég hef á efni þessa frumvarps, tilgangi þess og markmiðum og ég ætla aðeins að fá að varpa ljósi á þá skoðun mína.
Fyrst vil ég nefna að menn hafa fjallað hér um að bókun 35 með EES-samningnum hafi ekki verið innleidd hér með fullnægjandi hætti. Það liggur alveg fyrir og er ágreiningslaust að bókunin var ekki innleidd samkvæmt orðanna hljóðan og það lágu fyrir því ástæður, um það var fjallað í aðdraganda að gerð EES-samningsins fyrir meira en 35 árum síðan. Það kom mjög til umræðu og var reyndar ein af grundvallarforsendum þess að menn hér í þessum sal höfðu komið sér saman um að gera EES-samninginn og gangast þannig inn í það sem hefur síðan verið kallað EES-samstarfið. Forsenda þess var að bókunin yrði ekki innleidd samkvæmt orðanna hljóðan eða með þeim hætti sem hún kveður á um, sem er það að veita löggjöf sem sprottin er frá alþjóðastofnunum, sem EES-samningurinn er, forgang fram yfir íslensk sett lög og jafnvel þótt löggjöfin væri innleidd hér með einum eða öðrum hætti. Niðurstaðan varð að með 3. gr. EES-samningsins yrði skýrt kveðið á um að túlka bæri íslenska löggjöf til samræmis við EES-löggjöf í þeim tilgangi að reyna að tryggja þessa einsleitni sem allir voru sammála um og allir gengu, held ég, með opnum huga að að væri markmiðið með EES-samstarfinu. Það ætluðu menn að gera og hafa gert með því að kveða á um að túlka beri íslensk lög í þá veru ef vafi léki á um þýðingu íslenskra laga, ef vafi léki á um hvað íslenski löggjafinn vildi sagt hafa.
Þannig voru menn fullkomlega meðvitaðir um þennan stjórnskipulega vanda sem blasir við og er til staðar ef menn hefðu ætlað að innleiða bókun 35 með þeim hætti sem nú er verið að leggja til. Það var nú reyndar þá, auðvitað blasti við mönnum, sem menn vilja ekki horfast í augu við, að ef menn vilja gefa almennum lögum einhver forgangsáhrif þá verður það ekki gert öðruvísi en með breytingu á stjórnarskránni. Umræðan fyrir 35 árum fór auðvitað fram á þeirri forsendu að menn voru ekki tilbúnir til að breyta stjórnarskránni og gefa erlendri löggjöf þann forgang sem þeir vildu meina að bókun 35 krefðist.
Þessi aðferð við að innleiða bókun 35, sú niðurstaða sem menn urðu sammála um, að innleiða hana með 3. gr. EES-samningsins, hefur verið að megninu til alveg ágætisfyrirkomulag og mjög lítið sem þetta hefur plagað bæði Íslendinga og Eftirlitsstofnun EFTA, sem hefur þó í gegnum tíðina beint þeim tilmælum til Íslands um að það sé svokallaður innleiðingarhalli, þ.e. stundum finnst mönnum Íslendingar ekki innleiða löggjöf nógu hratt eða réttilega. Þá er bara gripið til þess, komi upp ágreiningur — það var líka hugsað fyrir því í upphafi með því að koma upp sérstökum dómstól, EFTA-dómstólnum, og allt var þetta fyrirsjáanlegt og ekkert óeðlilegt. Ég hef stundum nefnt það og kvartað yfir því að menn hafi farið á taugum yfir einhverjum tilmælum um að innleiða hraðar, að það sé kominn svokallaður innleiðingarhalli sem ég hef ekki getað fallist á að sé. Á hverjum tíma hafa Ísland, Noregur og Liechtenstein kannski innleitt mismikið af reglum og svona, en það er enginn halli. Þetta er bara allt eins og kerfið og EES-samningurinn býður upp á og ekkert óeðlilegt við það þótt að upp komi jafnvel ágreiningur um innleiðingu og eins túlkun á lögum.
Ég nefni þetta sérstaklega hér, að þetta hafi gengið ágætlega og verið athugasemdalaust, vegna þess að það hefur líka lagalega þýðingu. Það hefur lagalega þýðingu að þessi framkvæmd á bókun 35 með 3. gr. hafi verið athugasemdalaus í áratugi. Það hefur lagalega þýðingu. Það er ekki hægt, það er í það minnsta bæði ónákvæmt og ósanngjarnt ef menn koma upp hér 35 árum síðar og tala eins og það hafi verið allt í einhverjum lamasessi og að það liggi mikið á að breyta þessari athugasemdalausu framkvæmd sem Ísland hefur viðhaft í ágætu samstarfi við önnur EFTA-ríki, við Evrópusambandið og bara EES-samninginn í heild og EFTA-dómstólinn líka. Athugasemdalaus framkvæmd.
Ég hjó sérstaklega eftir því sem fyrrverandi dómari við EFTA-dómstólinn, Carl Baudenbacher, nefndi fyrir stuttu í viðtali, ég held að það hafi bara verið á þessum vetri, að jafnvel þótt hann hafi verið á þeirri skoðun eins og mjög margir á þeim tíma þegar við gengum inn í EES-samninginn, þegar hann sat í EFTA-dómstólnum, að Ísland hefði ekki innleitt bókunina með réttum hætti þá upplýsti hann okkur um það í þessu viðtali að hann væri núna þeirrar skoðunar að þetta ástand hefði varað svo lengi og án teljandi vandkvæða að ástæðulaust væri að hrófla við því. Hann nefndi líka, það var fallega gert af honum, í framhjáhlaupi að það væri ekki hægt að líta fram hjá því að í heildina hefði Ísland framfylgt EES-samningnum mjög vel. Þetta er hans mat sem fyrrverandi dómari við EFTA-dómstólinn. Hann nefndi það meira að segja líka að Ísland hefði framfylgt EES-samningnum jafnvel betur en Norðmenn, a.m.k. ef marka má málin sem hafa verið rekin fyrir EFTA-dómstólnum.
Þetta finnst mér skipta máli í þessu samhengi vegna þess að þetta mál er auðvitað öðrum þræði til komið vegna þess að menn eru kannski svolítið litlir í sér gagnvart einhverjum bréfum frá Eftirlitsstofnun EFTA og gagnvart einhverjum póstsendingum til Stjórnarráðsins um að Ísland sé ekki að standa sig nógu vel í hinu og þessu í EES-samstarfinu. Hér á árum áður var það lenska, hér voru fréttir á hverju einasta misseri um að Ísland væri ekki að innleiða nógu mikið af þessum reglum, eins og ég nefndi áðan. Og nú er þetta svolítið komið út í þetta að jú, við erum að standa okkur ágætlega að innleiða en þá erum við einhvern veginn ekki að veita þessum reglum forgang, þessum reglum sem við höfum innleitt, við séum ekki að veita þessum EES-reglum einhvern forgang umfram íslenska löggjöf. Allt er þetta að tilefnislausu að mínu mati, algerlega.
Ég þekki ágætlega, og hv. utanríkismálanefnd á að þekkja það líka, bréf sem íslensk stjórnvöld sendu, svarbréf, á þarsíðasta kjörtímabili til Eftirlitsstofnunar EFTA þar sem þessu var svarað með ákaflega vel rökstuddum og málefnalegum hætti. Ég bara satt best að segja skil ekki af hverju menn tóku 180 gráðu snúning í afstöðu sinni. Það var reyndar fólk í sama flokki, fyrrverandi samflokksfólk mitt, ráðherrar sem báðir gegndu embætti utanríkisráðherra. Það varð kúvending í málinu. Mér fannst og hefur aldrei þótt nokkur einasta ástæða til þess að bregðast við þessum bréfum frá ESA með öðrum hætti en gert var á síðasta kjörtímabili með þessu bréfi sem ég vísaði til. Það mætti gera það aftur, ítreka það aftur.
Umræðan er hins vegar mjög fróðleg og skemmtileg fyrir þá sem hafa gaman af lögfræðilegum álitaefnum en fyrir almenning svona almennt tel ég að málið sé ruglingslegt í meira lagi og ákveðnum kannski misvísandi upplýsingum haldið á lofti hér eins og að þetta muni skipta sköpum við það að tryggja að almenningur í landinu, hinn almenni borgari, geti sótt sinn rétt, sinn góða rétt sem hann á með sanni samkvæmt EES-samningnum. Þessu eru gjarnan haldið á lofti. Um leið er algerlega horft fram hjá því að það eru margar reglur sem Evrópusambandið setur og verða hluti af EES-samningnum sem eru ekki til hagsbóta fyrir hinn almenna borgara, margar íþyngjandi reglur sem eru það ekki. Ég er ekki með þessu þar með að segja að menn komist hjá því að endilega innleiða sumt af því en sumt er þó þannig að menn þurfa að hafa varann á og það hefur ekki verið gætt nægilega að því við innleiðingu að óska eftir íslenskum aðlögunum og jafnvel fresta innleiðingum á málum sem svo sannarlega eiga ekki erindi til Íslands og einkum og sér í lagi að óska eftir undanþágum sem við sannarlega getum gert samkvæmt EES-samningnum, óskað eftir undanþágum frá reglum sem ekki eiga við hér á Íslandi, sem hvorki eiga erindi hingað né eru til hagsbóta fyrir nokkurn mann hér á landi. Þannig að mér finnst ekki sanngjarnt að kynna þetta mál til sögunnar eins og þetta sé eitthvert sérstakt tæki í réttindabaráttu hins almenna manns. Það verður ekki þannig heldur þvert á móti kynni að vera að hinn almenni maður sem ætlar að reyna að fylgjast með löggjöf á einhverju tilteknu sviði eigi erfitt með að átta sig á hvaða löggjöf muni gilda og gildi í raun á hverjum tíma.
Hér er kveðið á um það, ef þetta nær fram að ganga, að almenn regla sem við innleiðum hér með EES-samstarfinu, sem er sett í lög hér í dag, muni hafa forgang yfir einhverja sambærilega reglu sem sett verður eftir tíu ár. Eftir tíu ár setur það þing sem þá situr einhverja reglu sem fer í einhverju gegn reglu sem við setjum í dag og það koma upp mistök, menn hafa ekki gætt að því við lagasetninguna og undirbúning lagasetningarinnar að kanna hvort það séu eldri lög sem gildi um málið. Það geta komið líka upp vandamál við túlkun í þessu og þá sitja menn uppi með það að reglan sem sett er hér eftir tíu ár gildir í rauninni ekki af því að það er einhver eldri regla sem á að gilda.
Þetta er svo fjarri hugmyndum manna um rétthæð réttarheimilda — og það er út af ástæðu, af því að þetta skapar auðvitað einhvers konar kaos og er óljóst að vinna í þessu lagaumhverfi — að ég ætla að leyfa mér, virðulegi forseti, að draga í efa að Hæstiréttur myndi vinna samkvæmt þessum lagatexta, jafnvel þótt þetta lagafrumvarp næði fram að ganga. Ég verð að segja það, ég á eftir að sjá Hæstarétt veita almennri löggjöf, gamalli almennri löggjöf einhvern forgang yfir nýja löggjöf um sama efni. Ég bara verð að játa það að ég hef enn þá þá trú á Hæstarétti að hann sé ekki svo heillum horfinn að hann gleypi þetta hrátt.
Hér hefur hins vegar verið sýknt og heilagt vísað í dóma Hæstaréttar og það gerir frumvarpið svo sannarlega til þess að rekja aðeins þessa sögu. Allir þeir dómar sem eru raktir í athugasemdum með þessu lagafrumvarpi lúta að því að EES-regla hefur ekki verið innleidd í íslensk lög. Hún hefur ekki verið innleidd í íslensk lög. Allir þessir dómar. Menn hafa hins vegar viljað byggja rétt sinn í þessum málum á þessari EES-reglu sem hefur ekki verið innleidd í íslensk lög. Hæstiréttur segir í öllum þessum málum: Þar sem liggur fyrir skýr íslensk lagaheimild um málið þá gildir hún, þá vinnum við eftir henni. Það er ekki búið að innleiða þessa EES-reglu sem menn eru að reyna að byggja á fyrir dómi. Þetta er alveg fullkomlega eðlileg lögskýring hjá Hæstarétti og annað væri ótækt.
Þetta frumvarp myndi ekki breyta neinu um niðurstöðu í þessum málum, ekki nokkrum sköpuðum hlut, af því að frumvarpið gerir ráð fyrir því að það þurfi að innleiða EES-regluna til þess að hún fái þennan forgang. Gott og vel. En Hæstiréttur segir líka í þessum málum, bara af því að það er verið að byggja á þessari EES-reglu, að þessi EES-regla sem menn eru að vísa í — og reyndar eru menn líka að vísa í EES-samninginn sjálfan sem hefur verið innleiddur að sjálfsögðu, svo ég taki það nú líka fram — að það verði ekki gegn skýrum ákvæðum íslenskra laga. Þau verða ekki látin víkja fyrir Evróputextanum, jafnvel þótt það sé EES-samningurinn sjálfur. Það kom nú fram í máli hv. þm. Ásthildar Lóu Þórsdóttur, sem er annar tveggja stjórnarþingmanna sem hafa tekið til máls hér, sem fjallaði hér um gengismál og annað, ég nefndi það í andsvari við hana, hún fann að því að gengislánin öll hefðu verið — ég átta mig reyndar ekki á því af hverju hún var að finna að því vegna þess að gengislánin voru einmitt dæmd ólögmæt. Þau voru dæmd ólögmæt vegna þess að það voru skýr íslensk lagaákvæði sem sögðu að þau væru ekki heimil. EES-reglurnar hins vegar kváðu skýrt á um það að gengislán ættu að vera heimil, þau ættu að vera leyfileg. Einhverjir vildu byggja rétt sinn á því, fjármálafyrirtækin m.a. Það var einmitt ekki látið eitt yfir fólk ganga.
Ég er ekki nema rétt byrjuð að reifa málavexti í þessu öllu máli, virðulegur forseti. En ég sé að tími minn er væntanlega úti ef marka má þessa klukku, ég hélt reyndar að það væri lengri tími í þessari fyrstu ræðu. En ég verð bara að biðja virðulegan forseta að setja mig aftur á mælendaskrá þannig að ég geti aðeins reifað hér önnur atriði frekar.