Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það er rétt að það komi fram hér að það gildir í íslenskum rétti og líka jafnvel í rétti Evrópusambandsins að lögmenn verða ekki samsamaðir viðfangsefnum sínum. Þeir eiga bæði rétt á því og eru reyndar líka skyldugir til að gera það ekki. Þannig að ef hv. þingmaður er að spyrja mig um möguleg framtíðarverkefni þá get ég engu svarað um það. Lögmenn taka að sér alls kyns verkefni og jafnvel verkefni sem þeir kannski eru ekki sammála en reyna kannski, ef einhver möguleiki er, að koma einhverju að eða takmarka skaða, getur maður sagt. Það er alvanalegt að lögmenn geri það. Erindisbréfið er ég nú ekki með með mér en menn hljóta að geta fengið það ef hv. þingmaður telur sig eitthvað græða á því.
Eina leiðin til að leiða þessa reglu í lög á Íslandi er að breyta stjórnarskránni. Það er mitt mat. Það er mitt, ég vil segja faglega mat, af því að menn eru hérna alltaf að kikna í hnjánum yfir einhverjum faglegheitum og fræðingum. Það er mitt mat að það er hægt að innleiða þessa reglu, að veita erlendum reglum sérstakan forgang eða veita tilteknum lögum hér á landi aðra rétthæð en þau hafa í dag. Það verður ekki öðruvísi gert en með stjórnarskrárbreytingu að mínu mati. Það er kannski verkefni fyrir hv. þingmann ef það er. Hann spurði líka um sjónarmið og störf nefndarinnar. Auðvitað kom ég mínum sjónarmiðum á framfæri og ég held að það hafi enginn sem hefur fylgst með stjórnmálum þurft að velkjast í vafa um skoðanir mínar á svona leikfimiæfingum sem eru ætlaðar til þess að svara einhverjum bréfum og umkvörtunum frá Brussel, frá Eftirlitsstofnun EFTA.