156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:04]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, það er gott að vita að hv. þingmaður útilokar ekki góð verkefni í framtíðinni. Hún er öflug á þessu sviði og gæti örugglega gert þjóðinni gagn í því. En að öllu gríni slepptu þá langar mig samt að spyrja hvort það sé þá þannig að þingmaðurinn hafi skilað af sér verkefni þar sem er lögð til regla sem að hennar mati fer í bága við stjórnarskrá. Skil ég þingmanninn rétt að starfshópurinn sem hún var í hafi skilað tillögum sem að hennar mati brjóta í bága við stjórnarskrá?