156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:10]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er samt ekki alveg viss um að ég hafi skilið það að fullu. Það kann að vera þeirri sem hér stendur að kenna en ekki hv. þingmanni þannig að ég ætla að biðja hana að endurtaka þetta örlítið. Hv. þingmaður segir hér að engin óvissa sé uppi, gott og gilt. Engu að síður hafa verið mikil áhöld uppi, og hv. þingmaður þekkir það auðvitað vel að innan hennar fagstéttar hafa margir haldið því fram að það væri ákveðin óvissa, að það væru áhöld um það hvort bókunin hafi verið innleidd með réttmætum hætti. Þá stendur eftir spurning mín til hv. þingmanns: Telur hv. þingmaður að löggjafinn þurfi með engum hætti að bregðast við? Að það mál sem hér liggur fyrir sé bara algerlega óþarft? Eða er hv. þingmaður að tala fyrir því að það þurfi að fara í stjórnarskrárbreytingar eða koma með þessa grein einhvern veginn öðruvísi orðaða með einhverjum öðrum hætti?