Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða og upplýsandi ræðu. Ég get eiginlega ekki sleppt því tækifæri að fá að ræða þetta aðeins fræðilega við hv. þingmann þar sem hún hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á þessu sviði. Það sem ég er að velta fyrir mér er hver áhrifin eru og hvar skurðpunktur áhrifanna er. Ef þetta fer í gegn, eins og ég skil þetta, þá hefur þetta einungis áhrif á þau réttindi eða þau ákvæði sem eiga uppruna í EES-réttinum, hefur þá áhrif á það innan íslensks lagasafns eða stjórnvaldsfyrirmæla sem er gert á grundvelli EES-samningsins. Það þarf þá fyrst að innleiða það í íslenskan rétt. Þá er ekki nóg að þetta virkist af því að það hlýtur að vera einhver árekstur á milli forgangsins. Hvað eru það mögulega mörg ákvæði í íslenskum rétti þar sem yfir höfuð mun reyna á þetta? Maður býst við því að þegar verið er að innleiða eitthvað í íslenskan rétt þá sé það oftast uppfærsla á sérlögum og annað slíkt. Maður sér því ekki alveg að það séu mörg tilfelli þar sem íslenskar sérreglur stangast á við EES-réttinn nema það sé einhver víðtækur lagabálkur sem er innleiddur. Það sem ég er að reyna að átta mig á er hversu víðtækt þetta er að umfangi, þ.e. hvar getur þetta mögulega haft áhrif á íslenskan rétt?