Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað erfitt að spá fyrir um hvaða áhrif þetta hefur. Í besta falli hefur þetta engin áhrif af því að Hæstiréttur mun aldrei líta til þessara laga, eða þessa frumvarps verði það að lögum. Það er hins vegar ótvírætt að þetta mun hafa áhrif á allan undirbúning lagasetningar. Mér hefur verið tjáð að öll ráðuneyti séu í startholunum að kollvarpa algerlega undirbúningi lagasetningar með þeim hætti að nú verði miklum mun fremur að lúslesa alla gildandi löggjöf og kanna hvort fyrirhuguð löggjöf kunni einhvers staðar að skarast á við aðra löggjöf til þess að menn lendi ekki í því kannski tíu árum eða áratugum seinna að löggjöf sem sett er þá verði allt í einu bara dæmd ógild, eða að menn ímyndi sér að hún verði dæmd ógild, af því að einhver áratugagömul löggjöf hafi verið við lýði. Þetta mun því kannski breyta undirbúningi í Stjórnarráðinu.
Þetta kann líka að leiða til þess að hér á Alþingi reyni menn að girða fyrir það að lögum sem sett eru í dag eða í framtíðinni verði mögulega vikið til hliðar vegna gamallar löggjafar með því að óska eftir því að sett verði klásúla, ákvæði, í hvert einasta lagafrumvarp, um að þessi lög gildi óháð því hvort eldri lög sem innleidd hafa verið af Evrópusambandinu kveði á um annað. Það kann að vera að menn geri það, t.d. um löggjöf í ýmsum málaflokkum sem menn telja mjög brýnt að gildi, þar sem engin áhöld eru um að hún eigi að gilda; að menn setji þá slíkt ákvæði nánast á sjálfstýringu, um að umrædd lög gildi óháð því hvort til staðar sé eldri löggjöf um sama efni sem innleidd hafi verið vegna EES-samningsins.