Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Mig langaði þá að velta því upp, í ljósi orða hv. þingmanns, sem ég tek alveg undir, hvort við fögnum því þá ekki bara ef stjórnkerfið fer aðeins að vanda sig og pæla meira áður en það fer að innleiða EES-löggjöf hér. Ég held að það sé nú bara gott. Ég velti því líka fyrir mér, í ljósi þess sem hv. þingmaður sagði, hvort við erum þá ekki mögulega bara að tala um áhrif, eins og hv. þingmaður kom inn á er ekki ljóst að Hæstiréttur fari eftir þessu, á núverandi lagasafn; af því að hér eftir, ef þetta verður samþykkt, muni löggjöfin fara fram með opnum augum, hún verði skoðuð út frá því hvort þetta ákvæði sé til staðar, og svo munum við sjá hvort Hæstiréttur fylgir því eða ekki.