Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér hið víðfræga og margumrædda mál, bókun 35. Í ræðu minni í fyrstu umferð, við framsögu málsins, kom ég inn á nokkra lykilþætti sem ég mun kannski ítreka í ræðu minni í dag en líka fara yfir það sem mér sýnist að hafi breyst, líka þá í pólitíkinni. Ég lagði á það áherslu í mínu máli við framsöguna að þetta væri mikilvægt mál en það væri mikilvægt fyrir ríkisstjórnarflokkana að fara með þetta út og reyna að útskýra fyrir almenningi. Ég notaði nú orðið lögfræðiþvæla, ég er búinn að hlusta á umræðurnar hérna í kvöld og fyrir okkur sem ekki erum löglærð þá myndum við örugglega geta notað það orð. Það eru mjög margir sérfræðingar á sviði lögfræði og stjórnarskipunar sem hafa fjallað um þetta. Langflestir eru á þeirri skoðun að þetta sé skynsamleg nálgun í ljósi þess sem gerst hefur, og hvað hefur gerst? Jú, frá því að bókun 35 kom inn fyrst og við töldum öll að hún væri nægjanleg og þingið þá í góðri trú samþykkti það, þá gekk það bara býsna vel í 10–15 ár eins og ég held að ég hafi orðað í ræðu minni þá. Síðan fór að bera á því að Hæstiréttur fór að dæma með aðeins öðruvísi hætti. Það var svona smátt og smátt að gerast þangað til ljóst var að staðan var orðin með þeim hætti að við það var ekki unað og þá fóru að koma athugasemdir frá Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, um að þessi bókun 35 hefði ekki verið rétt innleidd. Við fórum og tókum til varna í ríkisstjórninni 2017 til að byrja með og vorum þar í raun þangað til Hæstiréttur kemst að sinni niðurstöðu sem hér er búin að vera til talsvert mikillar umfjöllunar í dag og segir eiginlega að bókun 35 hafi ekki verið rétt innleidd. Þá er settur á starfshópur til að reyna að finna út úr því hvernig það eigi að gerast. Þetta frumvarp er búið að liggja hér fyrir þessu þingi og á síðasta þingi og í sjálfu sér ekki tekið miklum breytingum á þeim tíma. Þess vegna hefur mér þótt það vera eðlilegt að fara þessa leið.
Það eru hins vegar önnur sjónarmið sem hafa verið uppi og hér í kvöld hafa þau sjónarmið aðallega verið uppi að — í stað þess að bregðast við m.a. dómi Hæstaréttar, m.a. öllum þeim starfshópum sem hafa fjallað um og lagt til að þessi leið yrði farin, m.a. álitsgerð Þorgeirs Örlygssonar, fyrrverandi forseta Hæstaréttar og dómara við EFTA-dómstólinn — segja: Tökum samt slaginn, förum samt í málaferlin, athugum hvort EFTA-dómstóllinn segi ekki bara að gamla fyrirkomulagið sé fínt. Er það ekki ólíklegt í ljósi þess að ESA er búin að vera í bakinu á okkur núna í átta ár? Er það ekki ólíklegt? Þá kemur hinn möguleikinn: Gætu þeir ekki samt dæmt eitthvað mildilegar? Jú, ég ætla ekki að útiloka það, við vitum aldrei hvað dómstólar gera, en þeir gætu líka gengið lengra. Þeir gætu þvingað okkur til að gera hluti sem ganga lengra en hér er verið að fara. Og spurningin sem þá vaknar er: Er betra fyrir okkur, einmitt í nafni fullveldis og sjálfstæðis þingsins, að setja okkar eigin lög um þessa bókun 35, láta á hana reyna? Það getur vel verið að ESA komi aftur eftir einhvern tíma og segi: Þetta var nú ekki nógu gott hjá ykkur. Það getur vel verið, ekki ætla ég útiloka það, þetta er vandræðastofnun á köflum með nefið ofan í hvers manns koppi og virðist túlka EES-samninginn mjög þröngt gagnvart EES-ríkjunum, ekki síst á Íslandi, en það er mín skoðun. Þetta gæti sem sagt farið vel en hér erum við að gera þetta á eigin vélarafli, með eigin höndum.
Mín niðurstaða er einfaldlega sú eftir að hafa farið í gegnum þessa umræðu í mörg ár að hún byggist meira og minna á því að treysta á þá stjórnskipunarsérfræðinga sem við höfum yfir að ráða hér á landi sem langflestir, eins og ég sagði, nær allir, hafa lýst því að þetta sé skynsamlegt. Í kjölfarið á framlagningu á þessu frumvarpi fyrir nokkrum árum á því löggjafarþingi óskaði utanríkisráðuneytið — þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpinu, á bls. 18 — eftir áliti Þorgeirs Örlygssonar, sem er fyrrverandi forseti Hæstaréttar og fyrrum dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg, um hvort og þá að hvaða marki svigrúm löggjafans til lagasetningar verði takmarkað. Með leyfi forseta er ég að lesa upp úr greinargerðinni:
Verði frumvarp þetta að lögum, með hliðsjón af grundvallarreglu íslenskrar stjórnskipunar — að fyrri löggjafarþing geti ekki bundið hendur þeirra sem á eftir koma.
Þetta álit er síðan 10. maí 2023. Þetta hefur sem sagt legið fyrir býsna lengi. Niðurstaða álitsgerðar hans er sú að frumvarp þetta, verði það að lögum, takmarki í engu svigrúm löggjafans til lagasetningar og fer efni þess því ekki í bága við fyrrgreinda grundvallarreglu íslenskrar stjórnskipunar. Jafnframt hafi Alþingi fullt og óskorað vald síðar meir til að fella umrætt ákvæði úr gildi verði frumvarpið að lögum og setja lög sem ganga gegn réttilega innleiddum EES-reglum. Með öðrum orðum: Valdið er okkar. Það er það sem þessi álitsgerð segir, þannig að við erum ekki að gefa hér afslátt af fullveldinu eða brjóta stjórnarskrá. Ég myndi líka halda því fram að það sé viðurhlutameira, að fara hér í að breyta stjórnarskrá mun hafa miklu meiri áhrif heldur en að fara þessa leið, að breyta lagatextanum um bókun 35.
En þá komum við að pólitíkinni sem ég ræddi hérna í minni ræðu við framsögu málsins og benti á að þetta mál er úti í samfélaginu illskiljanlegt og það verður mjög auðvelt að búa til umrót í umræðunni hér á næstu dögum og vikum. Hér hefur ríkisstjórnin brugðist. Ég skoraði á hana að fara út og reyna að útskýra þetta fyrir almenningi á mannamáli. Ég skoraði á ríkisstjórnina að tala fyrir málinu. Það var unnið dyggilega í utanríkismálanefnd um tveggja mánaða skeið, ég held að ég muni rétt, á fjölmörgum fundum og margir sérfræðingar sem þangað komu breyttu ekki skoðun minni. Síðan var málið tekið út. Það hefur legið þar. Það hefur enginn talað um bókun 35 í tvo mánuði. Svo kemur það hingað inn, nokkrum dögum áður en þing er búið og það á að klára. Þetta er ekki gott. Þetta eru ekki góð vinnubrögð, kæri meiri hluti, ef það má segja, herra forseti; beina máli sínu til meiri hlutans með þeim hætti. Þetta er ekki gott. Þetta er ein af ástæðum þess að ég vildi ekki vera á nefndarálitinu. Ég vildi ekki bera ábyrgð á því hvernig núverandi ríkisstjórn er að fara fram með þetta mál, hvernig hún ætlar að koma því í gegn. Það er þeirra mál, þótt ég styðji málið, þó að ég sé sammála niðurstöðunni. Ég hef áhyggjur af þessu. Ég hef áhyggjur af því sem lá fyrir áður en þetta mál kemur fram, að einn af flokkum ríkisstjórnarinnar var algerlega á móti því.
Hér voru hins vegar stór tíðindi í kvöld þegar hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir kom fram og lýsti yfir því að hún hefði alltaf stutt þetta mál og gerði tilraun til þess að útskýra af hverju, tók að vísu ekki gott dæmi um gengislánin sem eins og mér hefur skilist var breytt á grundvelli íslenskra laga en ekki EES-réttar. En það var þó tilraun til að reyna að útskýra fyrir almenningi í landinu af hverju það ætti að innleiða nýja tegund af bókun 35, gera það réttilega. Það var tilraun. Hv. þingmaður gerði það hins vegar ekki í aðdraganda kosninganna og enginn af þeim flokksmönnum í Flokki fólksins gerði tilraun til þess að tala þá í þeirri kosningabaráttu um að bókun 35 væri góð og gild og þau ætluðu að fara í ríkisstjórn og koma henni í gegn, reyndar ekki frekar en að þau legðu til að þau ætluðu að selja Íslandsbanka og reyndar ekki heldur að þau legðu til að það væri skynsamlegt að fara og samþykkja ÍL-sjóðinn. Ekkert af þessu var talað um fyrir kosningar. Þess vegna er það ótrúverðugt að koma hérna núna og segja að allur Flokkur fólksins sé á bak við þetta mál. Ef sá flokkur, einn af flokkunum í ríkisstjórninni, treystir sér ekki til að fara út núna og tala fyrir málinu, hvernig á þá að sannfæra þá sem standa á bak við ríkisstjórnina, sem kusu ríkisstjórnina síðastliðið haust, og segja: Já, þetta er einmitt forgangsmál ríkisstjórnar. Þetta var fyrsta málið sem ríkisstjórnin setti á dagskrá á þinginu og við erum núna á síðustu dögunum að fjalla um þetta mál. Það er búið að liggja í meira en tvo mánuði eftir að það fór út úr nefnd án þess að það komi hérna inn. Þetta er heldur ekki trúverðug pólitík. Það vantar allan stuðning við þetta mál af hálfu ríkisstjórnarflokkanna.
Það er sérstakt ef við tökum upp hér ræður einstakra þingmanna Flokks fólksins frá síðasta kjörtímabili þegar um þetta mál var fjallað hversu langt þeir gengu í því að fjalla um þetta mál ef það er tilfellið að þeir séu bara búnir að skipta um skoðun alfarið, einn, tveir og þrír núna. Það er sérstakt og það er ein af ástæðunum fyrir því að ég treysti mér ekki til að vera á nefndaráliti með meiri hlutanum í þessu máli. Meiri hlutinn verður að bera ábyrgð á sinni pólitík. Pólitík er líka að kynna málið og koma því í gegnum umræðu á Íslandi sem er mikið langur vegur að hafi tekist. Það hefur bara ekkert verið rætt um það síðan það var hér í 1. umræðu um miðjan febrúar.
Ég ætla ekki að hætta mér út í hinar lögfræðilegu túlkanir, ég gerði það ekki heldur í minni fyrstu ræðu, einfaldlega vegna þess að ég hef fyrst og fremst verið að lesa þær álitsgerðir í gegnum tíðina sem hafa komið frá þeim sem gerst þekkja málið, stjórnskipunarsérfræðingum okkar, mörgum hverjum, hverjum starfshópnum á fætur öðrum sem hefur komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé skynsamlegasta leiðin til þess að viðhalda með réttmætum hætti innleiðingu á bókun 35 til að tryggja að EES-rétturinn og EES-samningurinn sé eins góður fyrir okkur eins og hann hefur verið sannarlega frá þeim tíma að hann varð hér hluti af okkar þjóðréttarlegu skuldbindingum og sjálfsagt mikilvægasti viðskiptasamningur sem við höfum gert. Hins vegar eru í landinu, á meðal almennings, skiptar skoðanir og það er líka í mínum flokki. Það eru skiptar skoðanir, einfaldlega vegna þess að fólk á erfitt með að samsama sig þessu vegna þess að það hafa farið fram í gegnum tíðina á undanförnum misserum mjög stóryrtar umræður hér, m.a. í þessum stól, af hálfu einstakra þingmanna. Þegar það er t.d. tilfellið með einn af stjórnarflokkunum í dag, Flokk fólksins, sem hefur talað gegn þessu máli allan tímann þangað til þeir eru komnir í ríkisstjórn og þá skipta þeir bara um skoðun, þá veltir maður fyrir sér hvaða trúverðugleiki sé á bak við þetta. Hver ætlar að sannfæra þjóðina um að þetta sé skynsamlegt? Er virkilega verið að treysta á það að við í minni hlutanum gerum það?
Ég ætla alla vega að enda mína ræðu hér í kvöld á því að segja að ég er sammála því sem kemur fram í nefndarálitinu og frumvarpinu og greinargerðinni að þessi leið muni tryggja okkur í þeirri stöðu að innleiðingin sé rétt. Ég er ekkert viss um að ESA sé sammála okkur um það, það kemur bara í ljós, það er bara framtíðin. Ég tel að það sé betra að við gerum þetta sjálf heldur en að við förum og prófum að fara fyrir dómstólinn en ég útiloka það ekkert að það sé ekki hægt, það er ekkert útilokað að taka til varna, en mér finnst betra að geta gert þetta sjálf. Mér finnst það vera hluti af fullveldinu, af því sjálfstæði Alþingis sem við erum að segja að við séum að verja og að hluti af deilunni snúist um. Mér finnst betra að við gerum það sjálf heldur en að verða dæmd til þess að gera eitthvað sem við vitum ekki nákvæmlega hvað verður. Mér finnst það betra. Mér finnst það betri nálgun. Þess vegna styð ég þetta mál en ég hef fullan skilning á þeim sjónarmiðum sem eru úti í samfélaginu vegna þess að það hefur ekki verið gerð alvörutilraun til þess að sannfæra fólk um að þetta sé með neinum skynsamlegum hætti. Fyrir kosningarnar síðustu var bara einn flokkurinn sem talaði mjög mikið gegn þessu. Ég er ekkert viss um að hinir stjórnarflokkarnir, Samfylking og Viðreisn, hafi talað mjög mikið um bókun 35 í aðdraganda kosninga. Ég er ekki viss um það, ég var ekki á neinum kosningafundum þeirra og ég get ekki fullyrt það, en ég er ekki viss um það. En ég veit að Flokkur fólksins talaði í hina áttina, grimmilega, um allt. Þau voru kosin í ríkisstjórn og núna segja þau að bókun 35 sé fín eins og svo margt annað sem þau hafa skipt um skoðun á og reyndar hinir stjórnarflokkarnir líka og þá er ég að vísa í Íslandsbanka, ÍL-sjóð, gjaldtöku í samgöngum og alls konar aðra hluti sem menn hafa bara skipt um skoðun á og það er ekkert að því. Batnandi fólki er best að lifa. Þegar menn sjá hlutina eins og þeir eru þá er það að skipta um skoðun oft bara merki um þroska.