156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:38]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er ekkert viss um að þótt ég hefði talað lengur hefði það verið skýrara. Stundum er betra að vera í knöppum tíma. Ég skal endurtaka það að ég styð málið. Mér líður ekki illa með að fara þessa leið. Ég ætla hins vegar ekki að vera á nefndarálitinu og bera ábyrgð á framgangi málsins. Ég benti á það hér í ræðu við 1. umræðu að það þyrfti, og það væri áskorun á stjórnarflokkana, að útskýra hvernig þetta mál væri vaxið. Það eru fyrst og fremst tveir flokkar á Íslandi sem hafa fjallað um þetta mál. Það er annars vegar Miðflokkurinn og hins vegar Flokkur fólksins og þeir hafa talað lóðbeint og hávaðasamt gegn málinu og verið með alls kyns stórar yfirlýsingar í gegnum árin. Þrátt fyrir allt þá hefur ekki gengið mjög auðveldlega að vinda ofan af þeirri vitleysu og þeim bábiljum sem þar hafa orðið til. Það var það sem ég var að hvetja ríkisstjórnina til að fara í og ríkisstjórnarflokkana. Þess vegna sagði ég að það væru áskoranir og ég hef fullan skilning á því.