Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að gefa svona skýrt svar sem ég átta mig fullkomlega á núna. Það er líka þessi afstaða gagnvart almenningi þegar hv. þingmaður segir að málið sé illskiljanlegt almenningi. Telur hv. þingmaður að ef þetta yrði kynnt almenningi myndi hann skilja þetta eitthvað betur eða hvað er hv. þingmaður að fara? Er hann kannski að fara í þá áttina að segja það óbeint að almenningur sé á móti málinu og sé svo mikið á móti málinu að hann sjái það ekki fara hér í gegn vegna andstöðu, m.a. eins flokksins í ríkisstjórninni hingað til þótt hann segi nú kannski annað núna. En svona örlítið varðandi afstöðu almennings: Hvernig skynjar hv. þingmaður — ég er með tvær mínútur, það er nú gott, þá held ég áfram — afstöðu almennings og hvernig samspilið er gagnvart þessu? Skynjar hv. þingmaður mikla andstöðu meðal almennings?