Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans góðu ræðu. Þegar ég var að kynnast hv. þingmanni fyrst sem opinber starfsmaður var oft vísað til hans í stjórnmálunum sem raddar skynseminnar og mér fannst hann akkúrat tala þeirri röddu hér í kvöld. Til að upplýsa þingmanninn þá var fyrsti vinnustaðafundurinn sem ég fór á í kosningabaráttunni hjá hópi manna sem við þingmenn Suðurkjördæmis, a.m.k. við sem erum frá Vestmannaeyjum, þekkjum ágætlega undir nafninu „litla ríkisstjórnin“, en hún kemur saman á hverjum degi í Vestmannaeyjum. Þar þurfti ég að útskýra fyrir þeim út á hvað bókun 35 gengi. Það var búið að undirstinga það við mig þannig að ég var vel undirbúinn og tókst að sannfæra þá.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvað hann hafi gert á sínum tíma, þegar ríkisstjórnin sem hann sat í lagði þetta mál fram, til að kynna það fyrir almenningi og leiðrétta — ég veit ekki hvaða orð ég á að nota yfir það, hv. þingmaður notaði orðið lögfræðiþvæla því að þeir sem ekki eru lögfræðimenntaðir eða mjög djúpt í þeim fræðum skilja málið ekki mjög vel eða misskilja það kannski fyrst og fremst — eða hvað hv. þingmaður hafi gert til að reyna að útskýra það fyrir almenningi.