Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Sjálfsagt hef ég ekki gert nóg. En á opnum fundum kom þetta vissulega oft upp, ekki síst þegar mikill hávaði hafði heyrst frá Miðflokknum eða Flokki fólksins um hversu stórhættulegt þetta mál væri. Þá þurfti maður að fara í að reyna að útskýra þetta. Ég held að ég geti bara sagt að ég hafi haft sömu reynslu af því og hv. þm. Víðir Reynisson, það gekk ágætlega. Hins vegar hefur hinn hávaðinn verið alveg látlaus og viðstöðulaus en yfirleitt heyrist ekkert frá þeim sem bera málið fram. Í þessu tilviki, þegar þetta mál kom fram og var forgangsmál ríkisstjórnarinnar, hvatti ég ríkisstjórnina og sagði: Ókei, þetta er forgangsmál og ef það á að klára þetta hratt og vel þá verðum við að fara í þetta samtal. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir verða að fara í það samtal en það hefur ekki verið gert.